Uppgjörið: Fram - ÍBV 5-1 | Framarar með flugeldasýningu gegn vonlausum Eyjamönnum Magnús Sigurjón Guðmundsson skrifar 27. apríl 2026 16:47 Fram og ÍBV eigast við. Vísir/Diego Fram fagnaði 5-1 sigri gegn ÍBV í 4. umferð Bestu deildar karla. Róbert Elís Hlynsson klóraði í bakkann fyrir Eyjamenn með marki beint úr aukaspyrnu en annars voru yfirburðir Fram algjörir. Leiknum var flýtt um hálftíma vegna siglinga Herjólfs á milli lands og eyja. Eyjamenn mættu til leiks með skottið á milli lappanna eftir að hafa beðið afhroð í síðustu umferð í 6-2 tapi á móti KR.Bæði liðin gerðu breytingar á byrjunarliðum sínum frá því í síðustu umferð. Fram gerði eina breytingu. Freyr Sigurðsson settist á bekkinn og Brasilíumaðurinn Frederico Bello Saraiva, betur þekktur sem Fred kom inn. ÍBV gerði aftur á móti þrjár breytingar á sínu liði eftir afhroðið á móti KR. Sesar Örn, Róbert Elís og Milan Jezdemirovic komu inn í byrjunarliðið en á bekkinn settust Arnar Breki, Vicente Martinez og Vitor Hugo Cruz Rocha. Leikurinn hófst af festu hjá Fram sem pressuðu hátt. Á 11.mínútu spyrnti Viktor Freyr langan bolta fram á völlinn. Boltinn berst á Sigurður Arnar sem ætlaði að hreinsa frá en boltinn skrúfaðist upp í vindinn. Vindurinn feykti honum á Mattias Edeland sem ætlaði að skalla boltann aftur á Marcel í markinu. Skallinn hjá þeim sænska var slakur og komst Atli Þór Jónasson inn í sendinguna, hann lék á Marcel Zapytowski í markinu og spyrnti boltanum svo í netið. Staðan orðin 1-0. Á 32.mínútu vann Fred Saraiva boltann, hann sendi á Vuk Oskar sem spyrnti boltanum strax aftur á Fred. Sá rakti boltann lengra upp völlinn og átti svo frábæra sendingu inn í teig. Þar var Atli Jónasson vel staðsettur og setti boltann í netið. Virkilega vel slúttað eftir vel útfærða sókn. Staðan orðin 2-0 og þannig stóðu leikar í hálfleik. Seinni hálfleikurinn Síðasti hálfleikur fór eins af stað. Fram voru á undan í öllum aðgerðum og Eyjamenn voru ráðalausir. Á 50.mínútu áttu Fram langt innkast inn í teig. Boltinn skoppaði til Þorra Stefáns sem hamraði honum í fyrstu snertingu beint í netið. Marcel Zapytowski átti ekki séns í fast skot Þorra. Staðan orðin 3-0 og dýpra sukku Eyjamenn ofan í vonleysisfenið. Tuttugu mínútum síðar bitu ÍBV loks frá sér. Róbert Elís Hlynsson skrúfaði þá boltanum í netið úr aukaspyrnu. Við það fengu Eyjamenn smá blóð á tennurnar. Fram var ekki á því að gefa gestunum neitt og slökktu í vonarneistanum fimm mínútum síðar. Haraldur Einar tók þá aukaspyrnu og þefaði uppi Kyle Mc Lagan sem spyrnti boltanum í netið. Staðan orðin 4-1. Ellefu mínútum síðar bættu Framarar svo við fimmta markinu við. Þar var að verki Kristófer Konráðsson. Það var ekkert að gerast þegar hann ákvað að lúðra á markið en Marcel Zapytowski var botnfrosinn á marklínunni og inn lak boltinn. Marcel var arfa slakur í leiknum og þetta mark kórónaði hauskúpuframmistöðu hans. Lokastaðan 5-1 heimamönnum í vil. Vestmanneyingar skottast í Herjólf með annað stóra tapið í röð í bakpokanum. Þeir hafa núna fengið á sig ellefu mörk í tveimur leikjum. Atvik leiksins Það voru mörg atvik sem vert er að nefna í þessum leik. Seinna mark Atla Þórs Jónassonar verður þó fyrir valinu. Spilamennska Brasilíumannsins Fred og Vuk Oskars í aðdraganda marksins var flott. Þeir léku brasilískan sambabolta og Fred lauk fléttunni með frábærum bolta á Atla Þór. Fred einfaldlega lætur alla liðsfélaga sína líta vel út. Stjörnur og skúrkar Stjörnur leiksins voru Atli Þór Jónasson og Frederico Bello Saraiva hjá Fram. Atli Þór skoraði tvö mörk og á því nafnbótina skilið. Fred barðist eins og ljón um allan völl og dreifði spilinu í allar áttir. Framarar geta verið glaðir að hafa fengið hann til baka úr meiðslum. Skúrkastimpilinn fær varnarsveit ÍBV og markvörðurinn Marcel Zapytowski. Vörnin og Marcel voru í engu sinki og samskiptaörðuleikarnir voru áþreifanlegir. Marcel gat nákvæmlega ekki neitt í leiknum. Dómararnir Ívar Orri Kristjánsson var á flautunni í dag og aðstoðarmenn hans voru þeir Birkir Sigurðarson og Arnþór Helgi Gíslason. Ívar Orri lét leikinn fljóta vel og á hrós skilið fyrir flotta frammistöðu. Stemmning og umgjörð Úlfarsárdalurinn var haustlegur á að líta í kvöld. Grátt var yfir öllu, hægur andvari og létt úrkoma. Kalt var í lofti og stuðningsmenn liðanna voru í engu sumarskapi. Það var fámenni á vellinum og fyrstu mínúturnar gat blaðamaður talið áhorfendaskarann án erfiðleika. Veðrið spilaði þarna stóra rullu og knattspyrnuunnendur hafa valið að taka leikinn í Besta Sætinu heima. Sem fyrr tóku Framarar vel á móti blaðamönnum með góðu upplýsingaflæði og enn betri veitingum. Rúnar Kristinsson: Fred gerir einfaldlega alla liðsfélaga sína betri Rúnar Kristinsson þjálfari Fram var glaður í bragði í leikslok. Hann sagði að hans menn hefðu byrjað leikinn rólega en náð svo að finna taktinn. Aðspurður sagði hann: „Heilt yfir er ég sáttur við frammistöðu minna manna. Við byrjuðum svolítið staðir en unnum okkur svo inn í leikinn.“ Rúnar sagði að þrátt fyrir að hans menn hafi unnið stór sigur þá hafi þó verið eitt og annað sem hefði mátt fara betur. „Þó að ég sé ánægður með leikinn heilt yfir þá er það nú samt alltaf eitt og annað sem maður finnur sem hefði mátt fara betur “. Aðspurður af fréttamanni hvort mikill vildi meira og hvort Rúnar væri skúffaður með 5-1 sigur þá brosti Rúnar Kristinsson út í annað. Hann svaraði að vitaskuld væri hann kampakátur með sigurinn sem væri sá stærsti frá því hann tók við Fram. Rúnar sagði einnig að Framarar séu glaðir að hafa fengið Fred Saraiva til baka úr meiðslum. „Það er virkilega gaman að fá Fred til baka. Hann sýnir alltaf mikil gæði og er einfaldlega þannig leikmaður að hann gerir alla samherja sína betri“. Rúnar var spurður út í lok félagaskiptagluggans, sem skellist í lás á miðnætti á miðvikudag, og hvort Fram ætli sér að opna budduna. „Budduna? Hérna eru menn ekki með neina buddu - heldur seðlaveski. Við erum sáttir við leikmannahópinn okkar og ætlum okkur að halda veskinu lokuðu“. Besta deild karla Fram ÍBV