Sport

„Auð­vitað ekki gott á móti jafn góðu liði og FH“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Ágúst Jóhannsson segir að Valsliðið hafi tapað fyrir betra liðinu í kvöld.
Ágúst Jóhannsson segir að Valsliðið hafi tapað fyrir betra liðinu í kvöld. vísir/Anton

Valur mátti þola sex marka tap gegn FH í Kaplakrika í kvöld og er staðan því orðin 1-1 í einvíginu.

„Ja, ég held bara að við töpum fyrir betra liði í dag. FH-ingarnir spiluðu vel og áttu skilið að vinna,“ sagði Ágúst Jóhannsson eftir tap Vals í kvöld.

FH voru með undirtökin nánast allan leikinn og unnu nokkuð sannfærandi í kvöld.

„Mér fannst við bara svona vera, hvað manni sýnist nú eftir á, bara í flestum þáttum leiksins. Við vorum soft varnarlega og allt of slitnir, sérstaklega í fyrri hálfleik. Svo förum við bara illa með boltann í sókninni. Við erum með mikið af töpuðum boltum og það er auðvitað ekki gott á móti jafn góðu liði og FH.“

Það var líf og fjör í Kaplakrika og þétt sett FH-megin. Valsmegin var hins vegar heldur götótt. Ágúst vildi þó ekki meina að stemningu hefði vantað í Valsliðið.

„Ég meina, menn komu hérna og gáfu sig 100% í verkefnið. FH er á heimavelli og þeir eru sterkir hérna, við vissum það. Við þurfum bara betri frammistöðu og ég held að við vitum það bara allir að við eigum töluvert inni. Við verðum að nota þessa tvo daga núna til þess að hlaða batteríin og vera klárir á þriðjudaginn.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×