Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. apríl 2026 07:00 Við getum unnið sömu störf en upplifað störfin okkar á allt annan hátt. Þar skiptir mestu hvernig við upplifum okkar eigið framlag. Vísir/Getty Vinnan okkar á að skaffa meira en laun. Henni er ætlað að skapa verðmæti fyrir vinnustaðinn okkar, hver sem hann er.
Þó sýna rannsóknir að fullt af fólki vinnur heilu dagana, nætur, árin… störf sem skipta ekki máli. Hvernig getur mögulega staðið á því? Jú, það sem rannsóknir sýna nefnilega er að til þess að vinnan okkar skili sínu, bæði til okkar og vinnuveitandans, þurfum við sjálf að upplifa að hún sé að gera þetta tvennt: Að skapa virði fyrir okkur sjálf, til dæmis þannig að við séum að vaxa sem manneskjur eða sjáum tækifæri í starfsþróun og fleira. Að skapa virði fyrir vinnustaðinn, sem þýðir að vinnan okkar hefur skýran tilgang. Ef þessi upplifun er ekki til staðar skiptir litlu hversu mikið við vinnum eða hversu mikið álagið er: Okkur líður samt eins og það sem við erum að gera skipti engu. Dæmi: Í könnun sem framkvæmd var á meðal starfsfólks á sjúkrahúsi kom í ljós að margt starfsfólk, sem þó var að vinna sömu störfin, upplifði vinnuna sína á gjörólíkan hátt. Sumum fannst hún leiðinleg eða upplifðu hana sem kvöð. Á meðan aðrir upplifðu sig í starfi sem skiptir miklu máli. Munurinn var því ekki starfið sjálft heldur hvernig við upplifum okkar eigið framlag. Fimm vísbendingar Til að vera sem ánægðust í vinnu og líða sem best skiptir því miklu máli að ná þessari upplifun sem gefur okkur tvennt: að skapa virði fyrir okkur sjálf og að skapa virði fyrir vinnustaðinn. Fimm atriði geta gefið okkur vísbendingu um að við séum hins vegar föst í viðjum þess að vera að vinna vinnu sem skiptir ekki máli. Þessi fimm atriði eru: 1. Þú sérð ekki árangurinn Það er alltaf talað um að hver starfsmaður skipti máli í heildarkeðjunni. En ef við erum í vinnu þar sem við sjáum ekki hvernig okkar starf hefur í raun eitthvað um endaniðurstöðuna eða árangurinn að segja, er það vísbending um að okkur finnist við vera í starfi sem skiptir engu. Góða ráðið: Til að sporna við þessu er gott að velta fyrir okkur hvernig vinnan okkar tengist liðsheildinni eða vinnustaðnum í heild og þeim markmiðum sem vinnustaðurinn er að keppast við. Síðan að tengja okkar verkefni við þessa heildarmynd. 2. Enginn tekur eftir vinnunni þinni Það er auðvitað ömurlegt að leggja sig vel fram í vinnu án þess að nokkur taki eftir því. Enda hafa rannsóknir sýnt að endurgjöf og viðurkenning fyrir það sem við gerum skiptir miklu máli. Vinnuframlagið okkar á ekki að hverfa í eitthvað tómarúm. Góða ráðið: Spurðu. Því þótt þú fáir ekki endurgjöf er ekki þar með sagt að vinnan þín skipti ekki máli. Að spyrja: Hvernig verður þetta notað? Hvernig nýttist það sem ég gerði? Svo margsannað er að endurgjöf og viðurkenning fyrir vinnuframlagið okkar skiptir alla máli, 3. Engar framfarir Það er eðlilegt að hvatning og eldmóður dali ef okkur finnst við alltaf rekast á veggi þannig að framfarirnar séu engar. Oft vegna þess að það er ekki samstaða hjá stjórnendum vegna breytinga eða einfaldlega að kerfið vill halda í óbreytt vinnufyrirkomulag eða ferla; The Computer Says No eins og sagt er. Rannsóknir hafa sýnt að það hefur bein áhrif á starfsánægju okkar og líðan að finnast við ekki komast aftur á bak né áfram. Góða ráðið: Finndu út þann hluta starfsins eða þinna verkefna sem þú getur stjórnað og haft bein áhrif á og fókuseraðu á þann partinn og þær framfarir sem þú nærð í þeim. Ef þetta er ekki hægt, undirbúðu vel tillögur og skýr markmið um breytingar eða nýjar lausnir og ræddu þær við yfirmann þinn. Stundum getur breytt forgangsröðun verkefna einfaldlega verið framþróun. 4. Sjálfið okkar og gildin Þekkt skýring á kulnun er þegar fólk er í starfi sem því líður ekki vel í vegna þess að starfið sem slíkt, samræmist ekki þeirra eigin gildum. Sem þýðir að eitthvað í vinnunni eða hluti verkefna eða stefnu vinnustaðarins stangast á við þína eigin sannfæringu. Dæmi um þetta getur til dæmis verið hvernig vinnustaðurinn ætlast til að viðskiptavinum sé sinnt eða þeir afgreiddir; stundum er það með þjónustuhætti sem þér finnst ekki vera réttur. Góða ráðið: Gott er að fara í gegnum það hvar áreksturinn liggur og hvort þetta ósamræmi sé veigamikill þáttur í vinnunni okkar eða aðeins lítill hluti. Af þeim fimm vísbendingum sem grein í FastCompany nefnir sérstaklega er þetta það atriði þar sem góða ráðið mælir einfaldlega með því að þú skoðir nýtt starf, sé staðan sú að núverandi starf sé ekki í samræmi við gildin þín. 5. Þinn vöxtur Það er ákveðin grunnþörf hjá okkur að vilja þróast, verða betri, læra eitthvað nýtt, ná markmiðum. Okkur þarf að minnsta kosti að líða þannig að við séum að vaxa með einhverjum hætti; sem manneskjur, sem starfsmenn eða bæði. Ekki síst nú, á tímum gervigreindar og mikilla breytinga. Góða ráðið: Byrjaðu á því að velta fyrir þér hvernig þú ert að upplifa þinn vöxt og/eða hvernig vöxt þú myndir í raun vilja upplifa fyrir sjálfan þig. Hvar og hvernig í starfinu þínu getur þú lagt áherslu á þennan vöxt? Ef þetta atriði er ekki sýnilegt er um að gera að ræða við yfirmann um verkefni eða ábyrgð sem mögulega gæti stutt við þína þróun.
Góðu ráðin Tengdar fréttir „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ „Það er ekki beint eins og veðrið sé alltaf að hjálpa okkur. Því stundum hefur fólk verið að lenda á Íslandi í stormi og varla litist á blikuna, jafnvel þannig að flugvél geti ekki lent eða fluginu sé aflýst,“ segir Kathryn Gunnarsson, Global Talent & People Experience hjá Alvotech, og hlær. 17. apríl 2026 07:01 „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ „Nálgunin snýr að því að mæta starfsmanninum þar sem hann er staddur hverju sinni. Með því að spyrja: Hvernig líður þér? Hvað er að frétta?“ segir Ingibjörg Rafnsdóttir mannauðsstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) og bætir við: 27. mars 2026 07:01 „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ „Ástæðan fyrir því að við viljum vekja máls á þessum sjónarmiðum er sú orðræða og fyrirsagnarnotkun sem við höfum verið að sjá undanfarið þessum málum tengt,“ segir Helena Jónsdóttir sálfræðingur og einn eigenda Mental ráðgjafar. 26. mars 2026 07:01 Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Að halda fókus er að verða sífellt flóknara. Enda áreitið á okkur mikið og hraðinn meiri en nokkru sinni. Sumir telja að athygli fólks sé í raun stöðugt að versna. Já, heimurinn versnandi fer og allt það… 25. mars 2026 07:02 „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ „Nú gengur allt út á að allir eigi að besta allt og skilvirknin eigi að ná hámarki,“ segir Rúna Magnúsdóttir, leiðtogamarkþjálfi og markaðs- og kynningastjóri SVÞ, í samtali um atvinnulífið og gervigreindina. 19. mars 2026 07:03 Mest lesið Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur „Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“ „Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ „Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Er sjálf besti leikmaðurinn: „Ég þurfti að gúggla mörkin hans“ Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Þegar óvissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Í röngu starfi og vansæl Sjá meira
„Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ „Það er ekki beint eins og veðrið sé alltaf að hjálpa okkur. Því stundum hefur fólk verið að lenda á Íslandi í stormi og varla litist á blikuna, jafnvel þannig að flugvél geti ekki lent eða fluginu sé aflýst,“ segir Kathryn Gunnarsson, Global Talent & People Experience hjá Alvotech, og hlær. 17. apríl 2026 07:01
„Svona samtöl snúast ekki um að skamma fólk fyrir fjarvistir“ „Nálgunin snýr að því að mæta starfsmanninum þar sem hann er staddur hverju sinni. Með því að spyrja: Hvernig líður þér? Hvað er að frétta?“ segir Ingibjörg Rafnsdóttir mannauðsstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) og bætir við: 27. mars 2026 07:01
„Mér er drull um vinnustað sem er drull um mig“ „Ástæðan fyrir því að við viljum vekja máls á þessum sjónarmiðum er sú orðræða og fyrirsagnarnotkun sem við höfum verið að sjá undanfarið þessum málum tengt,“ segir Helena Jónsdóttir sálfræðingur og einn eigenda Mental ráðgjafar. 26. mars 2026 07:01
Það er enginn aumingjaskapur að halda ekki fókus Að halda fókus er að verða sífellt flóknara. Enda áreitið á okkur mikið og hraðinn meiri en nokkru sinni. Sumir telja að athygli fólks sé í raun stöðugt að versna. Já, heimurinn versnandi fer og allt það… 25. mars 2026 07:02
„Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ „Nú gengur allt út á að allir eigi að besta allt og skilvirknin eigi að ná hámarki,“ segir Rúna Magnúsdóttir, leiðtogamarkþjálfi og markaðs- og kynningastjóri SVÞ, í samtali um atvinnulífið og gervigreindina. 19. mars 2026 07:03