Körfubolti

Lætur um­ræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tæki­færi

Aron Guðmundsson skrifar
Hilmar Smári með boltann í síðasta leik Stjörnunnar og Tindastóls.
Hilmar Smári með boltann í síðasta leik Stjörnunnar og Tindastóls. Vísir/Ernir Eyjólfsson

Hilmar Smári Hennings­son, leik­maður Stjörnunnar, segir sitt lið vera með gullið tækifæri í höndunum fyrir leik þrjú í ein­vígi gegn Tindastól í undanúr­slitum Bónus deildarinnar í körfu­bolta. Upp úr sauð eftir síðasta leik liðanna. Hilmar veltir sér ekki upp úr um­ræðunni og um­talinu í kringum ein­vígi liðanna.

„Við erum búnir vinna fyrir því að vera komnir í gott tækifæri,“ segir Hilmar Smári í sam­tali við Vísi en fáir gáfu Stjörnunni mögu­leika í þessu ein­vígi eftir að liðið hafði misst tvo lands­liðs­menn í meiðsli. Leikur þrjú í einvígi liðanna fer fram í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld.

„Við trúum enn, þrátt fyrir alla aðra, að við séum enn með gríðar­lega gott lið. Hugar­farið komandi inn í þennan leik er bara það sama og fyrir aðra. Maður kemur inn í hvern einasta leik til þess að vinna. Í úr­slita­keppninni er gríðar­lega erfitt að vinna tvo leiki í röð, hvað þá þrjá. En það er að sjálfsögðu mark­miðið okkar. Við erum á frábærum stað. Á þeim stað sem við viljum vera á.“

Gullið tækifæri

Með sigri í kvöld fer Stjarnan áfram í úr­slita­ein­vígið og sópar út Tindastól á þeirra eigin heima­velli þar sem að Stjarnan lyfti Ís­lands­meistara­titlinum á síðasta tíma­bili. Spennan fyrir leik kvöldsins er mikil því þrátt fyrir að ein­vígið standi 2-0 Stjörnunni í vil hafa leikir liðanna til þessa verið al­gjört augna­kon­fekt, boðið upp á mikla spennu.

Frá leik tvö í undanúrslitaeinvígi Stjörnunnar og TindastólsVísir/Ernir Eyjólfsson

„Á milli leikja nú­mer eitt, tvö og þrjú að koma líkamanum á það stig þar sem hann er til­búinn í að takast á við næstu baráttu. Við höfum verið að gera það vel og Stjarnan hjálpar til með alls konar endur­heimt, þjálfararnir og sjúkra­t­eymið í kringum liðið eru á fullu. Auðvitað eykst spennan eftir því sem nær dregur leiknum. En þetta er jákvæð spenna. Við erum með gullið tækifæri í kvöld. Ætlum að gera allt sem við getum til að klára þann díl. Taka þetta skref fyrir skref, einn leik­hluta í einu. Spila okkar körfu­bolta, fara eftir okkar gildum. Þá höfum við trú á því að þetta fari eftir okkar vegi.“

„Hefur engin áhrif á mig“

Síðasta leik liðanna í Garða­bænum lauk með flautukörfu Hilmars Smára í fram­lengdum leik. Það sauð upp úr því mat gestanna frá Sauðárkróki var að Hilmar Smári hefði skrefað í að­draganda körfunnar. Mikið hefur verið rætt og ritað um um­rædda körfu og þykir ljóst að karfan hefði ekki átt að standa.

Hilmar Smári lætur um­ræðuna og um­talið ekki hafa áhrif á sig.

„Nei. Ég er með sam­félags­miðla og allt tengt um­ræðunni í kringum körfuna rosa neðar­lega í minni for­gangs­röðun þegar kemur að úr­slita­keppninni. Ég fylgist voða lítið með því hvað er í gangi. Þessari um­ræðu og um­tali. Ég sé engan til­gang fyrir mig að vera fylgjast með því. Við fórum frá síðasta leik með sigur. Það er það eina sem skiptir mig máli. Sama hvað gerðist. Ég átta mig alveg á um­ræðunni sem er í gangi. En það hefur engin áhrif á mig.“

Býst við sturluðu andrúmslofti

Mistök hafi og muni eiga sér stað. Það sé partur af íþróttum.

„Ef maður tekur skref til baka, hugsar aðeins hvernig íþróttirnar fara fram. Þá eru mistök sem gerast hjá dómurum, leik­mönnum og þjálfurum. Í kringum hvern einasta leik. Stundum oft í leik. Það er bara náttúru­legt eðli íþróttanna, ein af ástæðum fyrir því af hverju þær eru svona skemmti­legar. Þetta er ekki bara vél­rænt ferli. Þetta gerist í beinni, er spennandi og hluti af þessu. 

Andrúms­loftið þarna í kvöld verður stur­lað. Þetta er úr­slita­keppnis andrúms­loft. Stemning sem maður vill taka þátt í. Ég hef aldrei orðið fyrir von­brigðum með stemninguna þegar að ég kem í Síkið. Ég get ekki beðið. Þetta verður ótrú­lega gaman.“

Stuðningsfólk beggja liða hefur verið frábært í úrslitakeppninniVísir/Ernir Eyjólfsson

Stoltur af sínu liði

Stemningin hjá leik­mönnum Stjörnunnar er góð. Liðið hefur þjappað sér saman.

„Þetta er alveg ein­stakt. Þegar maður nær að mynda svona stemningu, gleði og gott andrúms­loft. Að vera hluti af svo­leiðis er bara heiður. Gerir þetta skemmti­legra. Stundum getur þetta farið á hinn boginn. Getur orðið erfitt. Maður er bara gífur­lega þakk­látur fyrir að vera í þeirri stöðu sem við erum í í dag. Ég er ógeðs­lega stoltur af mínu liði. Hvernig við erum búnir að halda haus og standa okkur eftir öll þessi áföll sem hafa átt sér stað. 

Það eru ekkert margir sem geta labbað frá borði stoltir og sagt frá því að hafa komið svona til baka. Ekki gefið tommu eftir. Það þjónar engum til­gangi fyrir okkur að fara breyta okkar veg­ferð í þessu núna. Þetta er liðið sem við erum með í dag. Okkur líður vel í þessu liði. Treystum hvor öðrum. Þetta gerir íþróttina sem við elskum svo miklu skemmti­legri.“

„Ég læt þig vita“

Álagið mikið en er þreyta farin að segja til sín?

„Nei. Þetta eru nú bara undanúr­slitin núna. Allir þeir sem spiluðu síðasta leik eru heilir núna. Til­búnir í annan slag. Þreytan kemur kannski seinna. Hún hefur ekki komið hingað til. Ég læt þig bara vita þegar hún kemur.“

Leikur þrjú í einvígi Tindastóls og Stjörnunnar í undanúrslitum Bónus deildar karla í körfubolta verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport í kvöld og hefst klukkan korter yfir sjö. Leiknum er einnig lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×