Stefni í sömu átt og Svíþjóð Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 29. apríl 2026 20:37 Óskar Þór Guðmundsson er rannsóknarlögreglumaður á Austurlandi. Vísir/Bjarni Aukinn innflutningur fíkniefna með Norrænu veldur verulegum áhyggjum. Lögreglan segir málin tengjast skipulagðri glæpastarfsemi og að grípa verði inn í áður en ástandið versni.
Á rúmu ári hafa sex stór fíkniefnamál komið upp um borð í Norrænu. Norræna byrjaði að sigla aftur til landsins fyrir rúmum mánuði og strax í annarri ferð lagði lögregla hald á 43 kíló af fíkniefnum en hún telur að götuvirði efnanna hlaupi á milljörðum. Þetta er óvenju mikið magn og óvenju mörg mál og af þessu hefur lögreglan áhyggjur. Leitað að efnum í tugi klukkutíma „Þetta er orðið rosalega skipulagt og það er mikið verið að nota sérútbúin hólf í ökutækjum og það er ekki búið til af einhverjum aukvisum. Við höfum lent í því að þurfa að leita í bíl í tugklukkutíma áður en við finnum efnin,“ segir Óskar Þór Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður á Austurlandi. Frá því að Norræna byrjaði að sigla aftur til landsins hefur fjórum verið vísað frá á landamærunum. Í einhverjum tilfellum er talið að aðilarnir tengist skipulagðri brotastarfsemi. Lögregla segir ýmsar leiðir notaðar til að flytja efnin til landsins. „Eitt mál sem kom hérna í gegn, þar sem menn reyndu að smygla innvortis og það er náttúrulega rosaleg bjartsýni ef þú ert að fara að sigla í nokkra daga með ferju til Íslands. Það er óvanalegt allavega enda gekk það ekki betur en svo að efnin skiluðu sér áður en menn voru komnir til landsins, þannig að þau náðu þeim.“ Hefur miklar áhyggjur af þróuninni Óskar segir að þessi fjöldi fíkniefnamála sem er að koma upp sé til marks um að það að skipulögð brotastarfsemi sé að færast í aukana. „Ég var úti í Svíþjóð í síðustu viku og átti gott samtal við kollega okkar þar. Og því miður þá get ég ekki sagt annað en að ég held að við séum í rauninni bara á sömu leið.“ Óskar hafi miklar áhyggjur af þessari þróun. „Ef við förum ekki að spyrna svolítið við fæti þá held ég að samfélagið okkar eigi eftir að breytast á næstu árum.“ Rúnar Gunnarsson, yfirhafnarvörður við Seyðisfjarðarhöfn.Vísir/Bjarni Norræna kom til hafnar á Seyðisfirði í morgun og voru um 530 farþegar um borð. Mikil vinna fylgir komu ferjunnar og Rúnar Gunnarsson, yfirhafnarvörður við Seyðisfjarðarhöfn, segir að starfsmenn sinni eftirliti með farþegum þegar þeir komi í land. Hafnarstarfsmenn geri lögreglu og tollayfirvöldum viðvart ef þeir verði varir við vafasama hegðun. „Miðað við tölurnar frá lögreglunni þá er þetta að aukast og því miður þá er þessi leið valin. Þeir virðast halda það að þetta sé auðveldari leið en annað.“
Norræna Lögreglumál Fíkniefnabrot Smygl Múlaþing Tengdar fréttir Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Einn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum með Norrænu í lok mars. Lögregla heldur þétt að sér spilunum varðandi efnisatriði málsins. Verð á kókaíni hefur farið hækkandi undanfarin ár. 17. apríl 2026 11:49 Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá erlenda karlmenn í fimm á fangelsi hvern fyrir að flytja inn mikið magn af kókaínklóríðs til landsins. Efnin voru falin í bifreið sem kom til landsins með ferjunni Norrænu í nóvember. 9. apríl 2026 10:13 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira
Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Einn hefur verið úrskurðaður í sex vikna gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á ætluðum innflutningi á miklu magni af fíkniefnum með Norrænu í lok mars. Lögregla heldur þétt að sér spilunum varðandi efnisatriði málsins. Verð á kókaíni hefur farið hækkandi undanfarin ár. 17. apríl 2026 11:49
Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá erlenda karlmenn í fimm á fangelsi hvern fyrir að flytja inn mikið magn af kókaínklóríðs til landsins. Efnin voru falin í bifreið sem kom til landsins með ferjunni Norrænu í nóvember. 9. apríl 2026 10:13