„Þetta er smá spooky“ Valur Páll Eiríksson skrifar 30. apríl 2026 12:32 Kristófer Acox verður í eldlínunni í kvöld, í Grindavík. vísir/Guðmundur Kristófer Acox segir söknuð vera af Frank Aron Booker innan vallar er Valur sækir Grindavík heim í leik þrjú í undanúrslitaeinvígi liðanna í Bónus deild karla. Kristófer þekkir til meiðsla hans og segir að Frank Aron verði liðinu andlegur styrkur á hliðarlínunni.
Frank Aron Booker fór meiddur af velli snemma leiks í sigri Vals á Grindavík á Hlíðarenda síðustu helgi. Hann braut hnéskel og spilar ekki körfubolta næsta misserið eða svo. Kristófer segir söknuð af Frank en meiðslin séu tækifæri fyrir aðra að stíga upp, líkt og þeir Igor Maric og Hjálmar Stefánsson gerðu eftir meiðsli Franks í síðasta leik. „Það er náttúrulega gríðarlegt högg fyrir okkur að missa hann. Hann gerir gríðarlega mikið fyrir okkur bæði varnarlega og sóknarlega. Við munum sakna hans. En það er tækifæri fyrir aðra að stíga upp,“ „Við sáum það að Igor og Hjálmar voru stórir fyrir okkur í síðasta leik. Það er leiðinlegt að missa lykilmenn út í úrslitakeppninni, sérstaklega þar sem við vitum að hann mun ekkert koma aftur. Þetta verður aðeins þyngra, en eins og ég segi, aðrir þurfa að stíga upp,“ segir Kristófer. Frank Aron braut hnéskelina á sama stað í sömu höll gegn sama andstæðingi og liðsfélagi hans Kristófer Acox í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn fyrir tveimur árum síðan. Það tók Kristófer þónokkra mánuði að ná sér góðum af sínum meiðslum. „Það sem er mest scary við þetta er að þetta gerist á eiginlega nákvæmlega sama stað, í sama húsi á móti sama liði. Þetta er smá spooky. En hann er þannig gæji að hann er alltaf jákvæður og hress og hann hefur þrátt fyrir þessi leiðinlegu meiðsli verið mjög brattur,“ „Við munum alveg finna fyrir honum, þó hann verði ekki á gólfinu. Hann verður mikill orkubolti fyrir okkur á hliðarlínunni og hann mun reyna að gera sitt. En þetta gefur manni aðeins meiri hvatningu að klára þetta fyrir hann,“ segir Kristófer. Leikur Grindavíkur og Vals er klukkan 19:15 í kvöld. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland og bein útsending hefst klukkan 18:30.
Valur Bónus-deild karla UMF Grindavík Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira