Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 1. maí 2026 10:35 Nokkuð hefur borið á vasaþjófnaði við ferðamannastaði síðustu ár. Vísir/Vilhelm Tilkynningum til lögreglunnar á Suðurlandi um vasaþjófnað hefur fjölgað að undanförnu. Aðalvarðstjóri segir hópa sem komi til landsins í þeim eina tilgangi að stunda vasaþjófnað mögulega skýringu.
Meðlimur í Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar varar við vasaþjófum við Gullfoss í færslu á miðvikudag. Við færsluna birtir hann myndir af því sem hann segir tvo vasaþjófa á ferðamannastaðnum vinsæla. Í athugasemdum er tekið fram að lögregla hafi brugðist vel og skjótt við. Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir í samtali við fréttastofu að lögreglu hafi borist tilkynning um vasaþjófnað við Gullfoss á miðvikudag. „Við fengum vísbendingar sem við erum að fylgja eftir og reyna að komast á sporið um þá,“ segir Einar í samtali við fréttastofu. Engar handtökur hafi enn verið gerðar. Hann segir lögreglu reglulega fá tilkynningar um vasaþjófnað á ýmsum ferðamannastöðum á Suðurlandi en merkir aukningu á slíkum tilkynningum að undanförnu. „Þetta er búið að vera bæði á Gullfossi og Geysi og víðar. Á þessum ferðamannastöðum erum við að fá tilkynningar annað slagið,“ segir Einar. „Það er greinilega einhver kúfur í gangi núna. Við sjáum aukningu hjá okkur.“ Hann segir ekki hægt að fullyrða um ástæður fyrir aukningunni en nærtækasta skýringin sé sú að hún tengist hópum sem koma til landsins í þeim eina tilgangi að stunda vasaþjófnað.
Lögreglumál Ferðaþjónusta Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira