Sigmar Ó. Maríusson er látinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. maí 2026 23:02 Sigmar var sæmdur fálkaorðunni af Vigdísi Finnbogadóttur. Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður er látinn, 91 árs að aldri. Hann rak verslunina Módelskartgripir við Hverfisgötu í rúma þrjá áratugi og var sæmdur fálkaorðunni fyrir störf sín. „
Faðir okkar Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður, er nú fallinn frá 91 árs að aldri, litríkur maður og listrænn, fullur af þrautseigju, félagslyndi og lífskrafti,“ segja aðstandendur Sigmars í færslu á Facebook. Sigmar fæddist 8. mars 1935 í Hammi í Þistilfirði. Foreldrar hans voru Maríus Jósafatsson og Sigrún Aðalsteinsdóttir. Sigmar var 21 árs þegar hann missti báða fætur sína í bílslysi. Hann dvaldi í ellefu mánuði á sjúkrahúsi en fékk loks gervifætur á sjúkrahúsi í Danmörku. Í viðtali sem birt var í Tímanum árið 1973 sagðist hann ekki hafa treyst sér til að sinna sveitastörfum í Þistilfirði með gervifætur en bætti síðar við að hann teldi það ólíklegt að hann hefði orðið bóndi. Sigmar sagðist hafa verið afar heppinn þegar hann komst í gullsmíðanám hjá Halldóri Sigurðssyni. Sigmar stundaði nám hjá Halldóri árin 1958 til 1962 og starfaði hjá honum í tvö ár til viðbótar. Árið 1964 stofnaði hann, auk Pálma Jónssonar, Módelskartgripi sem var til húsa við Hverfisgötu. Tæpum tveimur áratugum síðar tók Sigmar alfarið við rekstrinum þar til ársins 1997. Þar á eftir var hann með verkstæði í bílskúrnum við heimili sitt í Kópavogi. Árið 1994 var Sigmar sæmdur fálkaorðunni af Vigdísi Finnbogadóttur. Þá var hann formaður Félags íslenskra gullsmiða í eitt ár og síðar heiðursmeðlimur. Á heimasíðu félagsins er honum lýst sem miklum sagnamanni auk þess sem hann hafi verið þekktur fyrir að herma eftir Stefáni frá Möðrudal. Árið 2020 gaf Bókaútgáfan Hólar út æviminningar Sigmars, bók nefnda Siddi Gull sem Guðjón Ingi Eiríksson skráði. Sigmar kvæntist Þórdísi Jóhannsdóttur og eignuðust þau saman fimm börn. Sambýliskona hans eftir andlát Þórdísar var Ragnheiður Ríkharðsdóttir og eignuðust þau eitt barn.
Andlát Handverk Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira