Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Kristján Már Unnarsson skrifar 4. maí 2026 13:30 Einar Ólafsson var forstjóri Cargolux frá stofnun félagsins árið 1970 til ársins 1982. Egill Aðalsteinsson Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux og síðast hrossabóndi á Snæfellsnesi, er látinn, níræður að aldri. Hann andaðist á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi í Kópavogi síðastliðið laugardagskvöld, 2. maí.
Sem stöðvarstjóri Loftleiða í Lúxemborg á mesta uppgangstíma Norður-Atlantshafsflugsins, sem rekstrarstjóri hjálparflugsins í Biafra-stríðinu og sem forstjóri Cargolux frá stofnun og fyrstu tólf starfsár félagsins markaði Einar djúp spor í alþjóðaflugrekstri Íslendinga á vaxtarskeiði sem oft hefur verið nefnt Loftleiðaævintýrið. Einar Ólafsson á skrifstofu Cargolux í Lúxemborg.Úr einkasafni Einar fæddist í Reykjavík þann 27. desember árið 1935. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1955, stundaði um tíma nám í læknisfræði við Háskóla Íslands, en réðist til Loftleiða árið 1959 sem flugumsjónarmaður, fyrst á Reykjavíkurflugvelli en síðar á Keflavíkurflugvelli. Í ársbyrjun 1965 flutti hann til Lúxemborgar ásamt fjölskyldu sinni þar sem hann starfaði sem stöðvarstjóri Loftleiða til ársins 1970. Samhliða stöðvarstjórastarfinu annaðist Einar rekstur hjálparflugs Flughjálpar á árunum 1969 til 1970. Loftleiðir stofnuðu félagið í samstarfi við þjóðkirkjur Norðurlanda til að annast flug frá eyjunni Sao Tome með matvæli og önnur hjálpargöng til sveltandi íbúa Biafra og nýttust gamlar DC 6B-flugvélar Loftleiða til flugsins. Árið 1970 var Einar ráðinn fyrsti forstjóri flugfélagsins Cargolux sem Loftleiðir stofnuðu með þriðjungshlut ásamt sænska skipafélaginu Salén og aðilum í Lúxemborg. Megintilgangur Loftleiða var að finna Rolls Royce-vélum félagsins, eða „monsunum“, hlutverk þegar þotuöldin var að ganga í garð. Vöxtur Cargolux varð til þess að íslensk flugnýlenda byggðist upp í Lúxemborg en fjöldi Íslendinga, þar á meðal flugmenn og flugvirkjar, réðst þangað til starfa. Í forstjóratíð Einars keypti Cargolux einnig DC 8-þotur og síðar Boeing 747-þotur en félagið telst í dag vera stærsta fraktflugfélag Evrópu og það fimmta stærsta í heimi. Eftir að Einar hætti sem forstjóri Cargolux árið 1982 starfaði hann sem yfirmaður hjá flugvélaleigu í Bandaríkjunum, Guinness Peat Aviaton, á árunum 1983 til 1993. Hann var forstjóri eigin fyrirtækis í Flórída, Nortran USA, á árunum 1993 til 1997 en flutti þá alkominn til Íslands. Hérlendis stofnaði hann ásamt fleirum meðal annars Flugfélagið Bláfugl og var stjórnarformaður þess. Einar Ólafsson á skrifstofu sinni hjá flugvélaleigunni Guinness Peat Aviation í Bandaríkjunum.Guinnes Peat Aviation Heimkominn keypti hann jörðina Söðulsholt í Eyja- og Miklaholtshreppi og síðar einnig jörðina Hrossholt. Þar gerðist hann hrossabóndi og skógarbóndi en sinnti jafnframt tilraunaverkefnum á sviði kornræktar. Eiginkona Einars var Ingibjörg Jónsdóttir, fædd árið 1935, en þau gengu í hjónaband árið 1959. Ingibjörg lést árið 2015. Þau eignuðust fjögur börn, Jón, fæddan árið 1961, Halldóru, fædda 1964, Ólaf, fæddan 1969, og Bryndísi Elínu, sem fæddist árið 1971, en hún lést í bílslysi í Bandaríkjunum árið 1988, 17 ára gömul. Einar átti sjö barnabörn og eitt langafabarn auk þess sem annað langafabarn er á leiðinni. Einar Ólafsson gerðist hrossabóndi á Snæfellsnesi eftir að starfsferli hans lauk í fluggeiranum.Úr einkasafni Einar var meðal viðmælenda í þáttaröðinni Flugþjóðin á Stöð 2/Sýn. Hann kom fram í fimm þáttum Flugþjóðarinnar; um Loftleiðir, Alþjóðaútrásina, Lúxemborgarnýlenduna, Cargolux og Júmbó-þotuna. Þá kom hann fram í þættinum Ísland í dag í fyrra um nokkra Íslendinga í Lúxemborg sem efnuðust verulega eftir að starfsferli þeirra lauk hjá Cargolux. Þáttinn má sjá hér:
Andlát Flugþjóðin Fréttir af flugi Lúxemborg Eyja- og Miklaholtshreppur Tengdar fréttir Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Sú afdrifaríka ákvörðun stjórnar Flugleiða að láta frá sér þriðjungshlut í Cargolux situr enn í Íslendingum í Lúxemborg þremur áratugum síðar. Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, segir þáverandi forstjóra Flugleiða hafa verið andvígan Cargolux. 17. apríl 2025 09:19 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Sú afdrifaríka ákvörðun stjórnar Flugleiða að láta frá sér þriðjungshlut í Cargolux situr enn í Íslendingum í Lúxemborg þremur áratugum síðar. Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, segir þáverandi forstjóra Flugleiða hafa verið andvígan Cargolux. 17. apríl 2025 09:19