Körfubolti

Furðar sig á æði­bunu­ganginum: „Bæði lið fá að bíða jafn stutt“

Aron Guðmundsson skrifar
Finnur Freyr, þjálfari Vals
Finnur Freyr, þjálfari Vals Vísir/Guðmundur Þórlaugarson

Finnur Freyr Stefáns­son, þjálfari Vals var afar ró­legur þegar hann mætti til viðtals hjá Andra Má Eggerts­syni eftir ótrú­legan sigur liðsins í leik fjögur gegn Grinda­vík nú í kvöld.

„Þetta var hunda­slagur, al­gjör box slagur af gamla skólanum sem við sem betur fer náðum að vinna. Þetta voru tvö lið að keppa, tvö lið sem lögðu allt í þetta og við náðum að hafa betur. Breki átti tvo stóra þrista en við náðum ein­hvern vegin að gera eitt­hvað og svo brjóta þeir á Callum í þristinum þegar hann er í neyðar­skoti, það hjálpaði til.“

Vals­menn eru þunn­skipaðir en Lazar Nikolic og Frank Booker eru báðir meiddir. Spurður út í stöðuna segir Finnur að liðið hafi vitað fyrir ein­vígið að Grinda­vík væri með gott lið það að missa þessa lykil­menn úr liðinu myndi vissu­lega ekki hjálpa til. Þá bendir hann á að aðrir leik­menn fái tækifæri til að stíga upp í þessari baráttu sem liðið er í.

„Igor og Hjálmar grípa báðir gæsina í kvöld. Við töluðum um það fyrir fyrsta leikinn að Grinda­vík er með stór­kost­legt lið og yrðu virki­lega erfiðir við að eiga. Við erum núna búnir að missa tvo lykil­menn sem hafa verið mikilvægir fyrir okkur í úr­slita­keppninni og það gerir þetta ekkert auðveldara. Þessir strákar eru búnir að stíga upp. Núna er þetta bara barningur, reyna að finna leiðir, reyna að sjá boltann fara oftar ofan í og reyna að ná nokkrum stoppum. Við vorum í bölvuðu basli með sóknar­fráköstin í þessum leik en þeir fá margar stórar körfur út frá sóknar­fráköstunum. Þetta var eins lítið taktískur leikur og þeir gerast heldur er þetta bara vilja­styrkurinn og að boltinn skopar niður en ekki upp úr.“

Þekkir oddaleikina

Valur fór einnig í odda­leik gegn Kefla­vík á dögunum. Hvernig leggst það í þig að vera á leiðinni á annan odda­leik?

„Það er búið að vera sagan alveg síðan ég kom í Val. Við erum búnir að spila helvíti marga odda­leiki og ég held að þetta sé fyrsti odda­leikurinn sem við spilum ekki á heima­velli síðan ég kom. Það er stutt á milli í þessu og af ein­hverjum ástæðum þarf að drífa þetta af núna eftir að það hafa alltaf verið þrír dagar á milli. Bæði lið fá að bíða jafn stutt. Þetta verður leðju­slagur á mið­viku­daginn eða ekki, getur verið hvað sem er. Sjáum hvað gerist.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×