Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. maí 2026 06:45 Árni Björn Helgason er einn íbúa í vesturbæ Reykjavíkur sem hefur vakið athygli á máli Sæmundarhlíðar undanfarin ár. Vísir/Vilhelm Engin ákvörðun hefur verið tekin um uppbyggingu á horni Holtsgötu og Brekkustígs og verður hún ekki tekin fyrr en eftir kosningar. Ekki er stefnt að því að sama byggingarmagni á reitnum samkvæmt nýrri tillögu en íbúar eru uggandi og gagnrýna að ekki hafi verið hægt að gera athugasemdir við breytingarnar. „
Það er ekki búið að taka neina ákvörðun í þessu máli,“ segir Líf Magneudóttir formaður umhverfis-og skipulagsráðs. Vísir greindi í desember frá áhyggjum íbúa af uppbyggingu fjölbýlishúsa og niðurrifi tveggja húsa á horni Holtsgötu 10-12 og Brekkustígs 16. Borgarsögusafn gerði í kjölfarið athugasemd við greinargerð nýs deiluskipulags, ekki væri rétt að húsið hefðu miðlungs varðveislugildi, heldur hátt. Furða sig á því að ný tillaga sé ekki birt „Tillagan sem nú er til afgreiðslu er dagsett 21. apríl 2026, en umsagnarfrestur rann út í desember 2025, íbúar fengu því aldrei tækifæri til að gera athugasemdir við þau gögn sem ákvörðun byggir á,“ segir Árni Björn Helgason einn íbúa í vesturbæ Reykjavíkur í samtali við Vísi. Íbúar upplifi sem svo að samþykkja eigi uppbyggingu í skjóli nætur. Hann segir nýja tillögu hafa verið kynnta íbúum á íbúafundi í janúar, þar sé meðal annars gert ráð fyrir því að húsið að Holtsgötu 10 verði endurbyggt en ekki skipt út, hæsti punktur hússins lækki um fjóra metra frá auglýstri tillögu og að byggingarmagn minnki um áttatíu fermetra. „Þetta er „betra“ en fyrri tillagan, en ekki sjálfkrafa ásættanleg. Ef húsið hefur hátt varðveislugildi, er aldursfriðað og hluti af vernd hverfisins, þá á fyrsta krafa að vera um varðveislu og endurbætur á núverandi húsi en ekki niðurtaka og endurbygging, „endurbygging“ er ekki það sama og varðveisla.“ Tíðkist ekki Ekki er hægt að nálgast gögn um nýja tillögu í skipulagsgátt. Fram kemur í fundargerðum skipulagsfulltrúa frá 21. apríl að erindi um nýtt deiluskipulag á reitnum hafi verið vísað til umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar. Í fundargerð þess kemur fram að málinu hafi verið frestað. Líf segir að ekki tíðkist að auglýsa tillögur að nýju eftir að samráð hafi átt sér stað. „Það eru breytingar á deiluskipulagi sem eru lagðar fram sem tillaga í skipulagsgátt, svo skila allir inn athugasemdum, svo er unnið úr athugasemdum og breytingar gerðar ef málefnanleg sjónarmið koma fram en deiluskipulag er ekki sent aftur til auglýsingar,“ segir Líf. Hún segir tillögu þess efnis um að fresta málinu hafi verið lögð fram til þess að ráðsmenn geti skoðað málið betur. „Oftast ber formanni að verða við því ef það kemur fram frestunarbeiðni. Það er rosalega mikið af gögnum sem liggja fyrir í þessum málum og þeim er oft frestað svo hægt sé að skoða þau betur.“ Líf segist hafa fullan skilning á áhyggjum íbúa. Hún hafi sjálf fundað oft með íbúum vegna málsins og segist leggja áherslu á að ekki hafi verið tekin ákvörðun í málinu. „Svo þegar þetta mál kemur aftur inn þá er það annað hvort til samþykktar eða synjunar, við erum stjórnvald, tökum stjórnvaldsákvarðanir og það þurfa alltaf að vera málefnanlegar ástæður til staðar ef einhverju er synjað.“
Reykjavík Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Sjá meira