Tilbúinn í umræður um hlaðvörpin en afdráttarlaus varðandi Rás 2 Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. maí 2026 11:10 Stefán Jón er fyrrverandi dagskrárstjóri Rásar 2 og var fljótur að grípa til varna fyrir sinn fyrrverandi vinnustað. Vísir Ríkisútvarpið er ekki að þenjast út, sagði Stefán Jón Hafstein, formaður stjórnar RÚV, í samtali við þáttastjórnendur Bítisins á Bylgjunni í morgun. Þar var til umræðu aðsend grein Stefáns á Vísi, þar sem hann sagði meðal annars meint forskot Ríkisútvarpsins ekki til.
Þáttstjórnendur Bítisins kröfðu Stefán útskýringa og spurðu meðal annars hvers vegna RÚV væri að framleiða hlaðvörp og halda úti „rokkstöð“, í stað þess að halda sig við almannaþjónustuhlutverkið. „Það var erindið í þessari grein að benda á það að íslensk fjölmiðlun, blaðamennska, er í mikilli vörn vegna þess að við erum öll í alþjóðlegri samkeppni. Ef þú horfir bara á eins og menn gera rekstrarlega stöðu á Íslandi þá hefur Ríkisútvarpið auðvitað notið þess að vera með útvarpsgjöld sem allir verða að borga,“ sagði Stefán. „En lítum hérna út á Suðurlandsbrautina. Bílarnir keyra framhjá og við ímyndum okkur að það séu allir að hlusta á Bylgjuna og einhverjir að hlusta á Rás 2 og Rás 1. Það er hins vegar fullt af fólki sem er núna að hlusta á hlaðvörp frá útlöndum. Nýjustu fréttir frá Financial Times eða New York Times, eða á BBC World Service eða Danmarks Radio í bílnum sínum.“ Stefán benti á að á sama tíma hefði íslensku fjölmiðlafólki fækkað verulega. Þetta væri mikið áhyggjumál og nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að standa vörð um íslenska menningu og efla íslenska fjölmiðlun. Stefán sagði forskot íslenskra miðla felast í því að tala beint inn í íslenskan raunveruleika. Rekstrarlega væru þeir hins vegar í harðri samkeppni við erlenda aðila, ekki síst á auglýsingamarkaði. Rás 2 hafi menningarlegu hlutverki að gegna Þáttastjórnendur Bítisins vildu hins vegar fá svör við því hvers vegna Ríkisútvarpið væri í samkeppni við aðra innlenda aðila, til að mynda varðandi hlaðvörp, í stað þess að sinna bara lögbundnum verkefnum. „Af hverju er RÚV á þeim markaði líka?“ var Stefán spurður. „Það er alveg rétt; Ríkisútvarpið er stórt á íslenskum markaði, svo sannarlega, alveg eins og Landspítalinn er stór á heilsumarkaði, Þjóðaleikhúsið á leikhúsmarkaði og allt það. Þetta eru opinberar stofnanir sem eiga að sinna menningarlegu hlutverki. En að láta Ríkisútvarpið fara í taugarnar á sér er að hitta rangt skotmark,“ sagði Stefán, sem vildi meina að það væru erlendu aðilarnir, sem tækju peninginn og greiddu enga skatta hérlendis, sem væru vandamálið. Spurningin var ítrekuð; af hverju væri RÚV í hlaðvarpsframleiðslu í samkeppni við fjölmiðlafólk útí bæ? Stefán benti á að nú væri í gangi stefnumótunarvinna, bæði af hálfu stjórn og stjórnenda RÚV. „Ég er ekki tilbúinn með svarið hér núna, vegna þess að ég hef ekki rætt það í stjórn og við stjórnendur. Eigum við að vera með sjálfstæð hlaðvörp sem tengjast ekki lögboðnu hlutverki Ríkisútvarpsins sem er útvarp og sjónvarp?“ Hann væri alveg til í þá umræðu. Spurður að því hvort það væri ekki nóg að RÚV væri með eina útvarpsstöð, Rás 1, í stað þess að reka líka „rokkstöðina“ Rás 2, var Stefán hins vegar fljótur að svara „Nei“. „Ég er búinn að ræða þetta í hálfa öld, þetta mál,“ svaraði fyrrverandi dagskrárstjóri Rásar 2. „Og ég segi að Rás 2 hefur ákveðnu menningarlegu hlutverki að gegna, í dægurmenningunni. Gerir hún það nógu vel? Aldrei. En sumt er gott og annað miður, eins og hjá ykkur.“
Bítið Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Ríkisútvarpið Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Tveir lagðir við gangstéttina Innlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Innlent Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Innlent Fleiri fréttir Grunaður um að ráðast á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Sjá meira