Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Freyja Þórisdóttir skrifar 28. október 2026 18:20 Teslu-bifreið lögreglumannsins eyðilagðist í brunanum. Myndin er úr safni. Getty/Vísir Þrír menn hafa hlotið dóm fyrir að hafa í ágúst 2023 kveikt í Teslu-bifreið lögreglumanns gegn greiðslu sem hljóðaði upp á hundrað þúsund krónur. Málinu hafði verið vísað frá dómi í desember síðasta árs en þá hafði ekki fengist leyfi frá Ríkissaksóknara til þess að Héraðssaksóknari gæti farið með málið.
Í ákæru á hendur mönnunum þremur, sem hafa allir neitað sök, segir að um hafi verið að ræða Teslu Model 3, 2020 árgerð, sem var í eigu lögreglumanns og var kyrrstæð og mannlaus utandyra í Reykjavík um nótt og morgun í ágúst 2023, þegar atvik málsins áttu sér stað. Tvær atrennur Einn mannanna hafi um nóttina, gegn vilyrði um greiðslu hundrað þúsund króna, gert tilraun til að valda stórfelldum skemmdum á bílnum með því að skvetta bensíni undir og á bílinn og reyna að kveikja í honum. En þá hafi það ekki tekist. Mennirnir þrír voru síðan ákærðir fyrir eignaspjöll með því að kveikja í bílnum seinna um morguninn. Í niðurstöðukafla úrskurðar héraðsdóms segir að við aðalmeðferð málsins hafi verjendur tveggja ákærðu krafist frávísunar málsins og verjandi þess þriðja tekið undir kröfur þeirra. Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur þann 14. nóvember 2025 var að ákæran ætti ekkert erindi fyrir dómi þar sem leyfis frá ríkissaksóknara hefði ekki verið aflað. Það væri nauðsynlegt þar sem héraðssaksóknari færi ekki með ákæruvald í málum sem þessum, þar sem ákært er fyrir eignaspjöll. Sjá einnig: Sneypuför í Teslubrunamáli kostar ríkið ellefu milljónir Leiða má líkur að því að leyfið hafi svo verið veitt fyrst að málið var höfðað með ákæru útgefinni af héraðssaksóknara í febrúar þessa árs. Þó er ekki fjallað um leyfið í dómnum sem var kveðinn upp í dag. Ekki vanhæfir vegna tengsla Í niðurstöðukafla úrskurðar héraðsdóms segir að hinir ákærðu krefjist frávísunar málsins meðal annars vegna þess að málið hafi í raun verið rannsakað af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og starfsmönnum hans sem hafi verið vanhæfir sökum tengsla sinna við brotaþola, sem, líkt og fyrr hefur komið fram, er lögreglumaður sjálfur. Þingfestingin fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur.vísir/stefán Þá segir að hvað þessa málsástæðu varði liggi fyrir að upphafsaðgerðir í málinu hafi verið unnar undir stjórn lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, enda ekki ljóst í upphafi að brotaþoli væri lögreglumaður. Það liggi hins vegar fyrir aðhéraðssaksóknari hafi tekið við stjórn rannsóknar málsins strax á fyrsta degi. Að mati dómsins verði því ekki séð að nokkur þeirra rannsakenda sem hafi unnið að rannsókninni undir stjórn héraðssaksóknara hafi haft slík tengsl við brotaþola að það hafi valdið vanhæfi þeirra við rannsóknina. Sem fyrr segir neituðu allir sök í málinu en það er mat dómsins að þeir hafi framið brotið í sameiningu og beitt vítaverðri og hættulegri aðferð við verkið. Mennirnir greiði en ekki ríkissjóður Þá hlutu tveir hinna ákærðu átta mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm en sá þriðji sex mánaða dóm. Er þeim gert að greiða Verði tryggingum hf. óskipt 2.754.000 kr. með vöxtum og 600 þúsund krónur í málskostnað. Einkaréttarkröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu var vísað frá dómi en embættið krafðist þess að hinir ákærðu myndu greiða því samanlagt sem nemur um hálfri milljón króna auk vaxta og dráttarvaxta. Mennirnir þrír greiði málsvarnarlaun skipuðum verjendum sínum á bilinu 2.600.000 til 2.800.000 en annar sakarkostnaður, að fjárhæð 1.566.942, verði greiddur óskiptur. Í fyrri úrskurði, frá því í nóvember 2025, segir að það athugist að víða í málsgögnum komi sama skjalið fyrir tvisvar eða jafnvel oftar og það sé til þess fallið að valda ruglingi. Gögn málsins séu einnig sett upp með fremur óskipulegum hætti, sem geri þeim sem um málið þurfa að fjalla erfitt fyrir að átta sig á tímalínu þeirra aðgerða sem fóru fram. „Er þetta að mati dómsins aðfinnsluvert.“ Í ljósi úrslita málsins falli allur sakarkostnaður á ríkissjóð. Hann felur í sér málsvarnarlaun þriggja verjenda ákærðu, alls 11,4 milljónir króna. Hann felur ekki sér annan kostnað við rekstur málsins, svo sem laun sækjanda eða rekstur dómstólsins. Þessum hluta úrskurðarins hefur greininlega verið breytt samanber kostnaði sem er útlistaður hér fyrir ofan.
Lögreglumál Dómsmál Tesla Reykjavík Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Sjá meira