Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar 15. maí 2026 12:30 RÚV flutti nýlega fréttir um að „Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Þetta kemur fram í skýrslu sem er unnin af sjálfstæðri ísraelskri rannsóknarnefnd ... Ofbeldið einkenndist af mikilli grimmd og þjáningu og var beitt til að ógna og niðurlægja.“1) „Óháða“ skýrslan Skýrslan sem RÚV segir frá kom út 12. maí er tæpar 300 blaðsíður og virðist vera þungaviktarplagg í augum þeirra sem hafa litlar eða engar forsendur til þess að skilja tilgang skýrslugerðarinnar. RÚV sagði í frétt um útkomu skýrslunnar að hún væri niðurstaða „óháðrar rannsóknarnefndar“. Það er rangt. Ég kannaði hverskonar rannsóknarhópur stóð að baki skýrslugerðinni og komst að þeirri niðurstöðu að skýrslan er skrifuð af síonistum fyrir málstað síonista. Rannsóknarhópurinn sem samanstendur af fólki sem styður málstað Ísraels og síonismann. Það er útgangspunktur hópsins; að rannsaka einhliða meinta glæpi Hamasliða og annarra Palestínumanna sem réðust út úr Gaza 7. október. Lítum á nokkra aðstandendur skýrslunnar: Sá sem er skráður sem megin höfundur (e. Principal contributor) er Irwin Cotler. Hann er mannréttindalögfræðingur og fyrrum dómsmálaráðherra Kanada. Cotler gæti við fyrstun sýn verið dæmi um óháðan aðila. En við nánari skoðun kemur í ljós að hann situr í utanríkismálanefnd Ísraels (Israel Council on Foreign Relations), er giftur ísraelskri konu og lýsir sjálfum sér: „dyggum og einbeittum stuðningsmanni Ísraels á alþjóðavettvangi.“ Frumkvöðull skýrslugerðarinnar og stofnandi skýrsluhópsins „Borgaraleg nefnd um glæpi Hamas gegn konum og börnum þann 7. október“, er dr. Cochav Elkayam-Levy sérfræðingur í alþjóðalögum og mannréttindum. Hún er einarður síonisti og hefur unnið gegn því að Sameinuðu þjóðirnar rannsaki samskonar glæpi Ísraels gegn Palestínumönnum og segir að ásakanir á hendur Ísrael um kynferðisglæpi jafngildi „annarri nauðgun á ísraelskum fórnarlömbum 7. október“. Í viðtali hjá The Times of Israel segir hún að tilgangur Hamas hafi verið að auðmýkja Ísraela og „terrorisera“ til að hafa áhrif á næstu kynslóðir. Eða eins og við fáum sífellt að vita: Ísrael er alltaf fórnarlambið. Helsta stuðningskona hópsins að baki skýrslunni, er milljarðamæringurinn Sheryl Sandberg höfundur kvikmyndarinnar Screams before Silence. Sú mynd er á sömu slóðum og skýrslan, allt gert til þess að sýna frelsisbaráttu Palestínumanna í glæpsamlegu samhengi. Myndin hefur verið harkalega gagnrýnd vegna margvíslegra rangfærslna. Þeir sem vilja kynna sér það nánar geta skoðað þátt Electrical Intifad: https://www.youtube.com/watch?v=TApiok-KiRc. Myndina má sjá á Youtube: https://www.youtube.com/watch?v=zAr9oGSXgak. Ég mæli með því að menn skoði gagnrýni á myndina áður en þeir skoða sjálfa myndina. Í kvikmyndinni er m.a. viðtal við Rami Davidian, eitt af „vitnunum“. Í skýrslunni er vitnað 13 sinnum til framburðar hans. Í þættinum sem ég vísa til er hann afhjúpaður sem margsaga lygari. Olivia Flasch er skráð sem einn aðalhöfunda (e. Principal Author) skýrslunnar. Hún starfar fyrir Ísraelsstjórn og ver Ísrael gegn málssókn S - Afríku við Alþjóðadómstólinn. Í málflutningi sínum hefur hún véfengt skýrslur Sameinuðu þjóðanna og tölur um fjölda drepinna á Gaza. Olivia afneitar því einnig að Ísrael fremji þjóðarmorð á Gaza. Meital Nir-Tal er alþjóðalögfræðingur. Hún hefur starfað sem lögfræðingur í Utanríkisráðuneyti Ísraels og er ráðgjafi Ísraelsstjórnar við Alþjóðadómstólinn í Haag. Hún hefur varið aðferðir Ísraelshers á Gaza - segir Hamas nota mannlega skildi og að Ísrael leitist við að fara að alþjóðalögum. Merav Israeli Amarant. Merav er lögfræðingur og hefur starfað í hátæknigeiranum í Ísrael. Hún hefur einbeitt sér að rannsóknum á glæpum Hamas en ekki tengst neinum rannsóknum á þjóðarmorðsásökunum gegn Ísrael. Þetta eru nokkrir af hinum „óháðu“ aðstandendum skýrslunnar. Fórnarlömbin Í samantekt á helstu atriðum skýrslunnar um glæpi Palestínumanna segir: „Í þessu sambandi telur Ísraelsríki um það bil 61.000 manns séu fórnarlömb árásanna.“ Yfirvöld Ísraels telja þannig að til viðbótar þeim 1.200 sem voru drepnir 7. október skv. skýrslunni, beri um 60.000 Ísraelar „langvarandi skaðlegar afleiðingar [sem] hafa víðtæk samfélagsleg áhrif sem teygja sig yfir margar kynslóðir og hafa áhrif á fjölskyldur, samfélög og samfélagið í heild.“ Þessi orð vekja óhjákvæmilega þanka um þær milljónir Palestínumanna á Gaza og á Vesturbakkanum sem hafa mátt þola morðárásir í margar kynslóðir. En skýrslan einblínir á þau fórnarlömb sem síonistar telja að skipti máli. Ennfremur segir í samantekt skýrslunnar: „Á grundvelli rannsóknar sinnar kemst rannsóknarnefndin að þeirri niðurstöðu að þessir glæpir teljist stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð samkvæmt alþjóðalögum. Því setur skýrslan fram skýran vegvísi að saksókn vegna þeirra glæpa sem framdir voru 7. október og í fangavist gíslanna.“ Hér tala síonistarnir um þjóðarmorð og brot á alþjóðalögum. Það virðist ekki hvarfla að „óháðum“ höfundum skýrslunnar að þeir séu að skrifa setningar sem passa fyrst og fremst til þess að lýsa glæpum síonistaríkisins. Tilvísun í alþjóðalög er hláleg því það er helsta framalg Ísraels til alþjóðamála er að brjóta alþjóðalög. Dansað fyrir utan fangagirðinguna Flestir íbúar Ísraels hafa ótruflaðir notið sinnar tilveru þó að í örfárra kílómetra fjarlægð frá heimilum og vinnustöðum þeirra sé milljónum manna haldið í umsátri, landi stolið og fólk hrakið af heimilum sínum og myrt þúsundum saman. Það segir sína sögu að danshátíð var haldin rétt við girðinguna þar sem tvær milljónir manna hafa verið innilokuð í tvo árátugi. Danshátíðin var haldin á landi sem var stolið frá fólkinu á bak við girðinguna. Áratuga innilokun Ekki er með einu orði í skýrslunni minnst á yfirstandandi þjóðarmorð á Gaza, umsátrið eða aðdraganda árásar Hamas út úr Gaza-gettóinu. Hvað þá að margsannaðir kynferðisglæpir ísraelskra hermanna gegn Palestínumönnum, konum, körlum og börnum, séu til umfjöllunar. Palestínumennirnir 5000 sem brutust út úr Gaza fangabúðunum 7. október 2023 höfðu lifað innilokaðir í tæpa tvo áratugi. Alla ævi sína voru þeir vitni að árásum frá Ísrael, þar af fjórum stórárásum 2) úr lofti og á landi þegar þúsundir Gazabúa voru drepnir. Flestir höfðu þeir misst nána ættingja eða vini í árásum Ísraelshers. Ég tel augljóst að skæruliðar Hamas og aðrir hópar sem fylgdu þeim 7. október hafa framið stríðsglæpi, m.a. með því að drepa óbreytta borgara, taka gísla og einnig að nauðganir hafi átt sér stað. En tilgangur skýrslunnar er að saka Palestínumenn um skipulagðar nauðganir og að það sé meginmálið og grundvöllur þess, eins og marg ítrekað er í skýrslunni, að ákæra Hamas fyrir þjóðarmorð. Fólk sem fordæmir kynferðisafbrot Skýrslan er skreytt með nöfnum og umsögnum fjölda fólks sem hefur virðulega titla og hefur sinnt háum embættum. Þeirra á meðal eru stjórnmálafólk, menntafólk, vísindafólk, ýmsir sérfræðingar og auðmenn frá mörgum löndum. Að sjálfsögðu tekur allt þetta fólk undir fordæmingu á notkun kynferðisofbeldis í stríðsátökum. Í skýrslunni eru nefnd fimmtán lönd þar sem herir hafa beitt kynferðisofbeldi - en hvergi er minnst á heri Ísraels sem hafa nauðgað og myrt palestínskar konur frá árinu 1948. Þessi staðreynd hlýtur að vekja athygli þeirra sem kynna sér skýrsluna og sýnir jafnframt hversu einhliða hún er. Lygar á lygar ofan Í tengslum við birtingu skýrslunnar er vert að rifja upp allar lygarnar sem ísraelskir aðilar sendu heiminum strax eftir 7. október. Þær lygar, um afhöfðuð börn, um börn sett í bakaraofna og óléttar konur ristar á kvið ofl. voru básúnaðar m.a. af forseta Bandaríkjanna og rötuðu í ræðustól Alþingis hér heima. Tilgangur lyganna, sem hafa verið afsannaðar, var að gera Palestínumenn réttdræpa í augum heimsins. Hræsnin síonistanna blasir við - öllu starfi nefndarinnar beint að einu marki í þágu málstaðar síonista - sem dregur mjög úr gildi verksins. Fréttastofa RÚV kýs að birta þessa frásögn mörgum sinnum með þessari augljósu fölsun um sjálfstæði og óhæði hópsins sem samdi skýrsluna. Það er ábyrgðarhluti að flytja rangar eða villandi fréttir, fréttir sem hafa ekki verið rannsakaðar sjálfstætt en eingöngu hellt yfir þjóðina sem sannleika. Það er ekki hlutleysi - það er þátttaka í níðingsskap gegn þjóð sem berst fyrir tilveru sinni gegn ofurefli sem nýtur stuðnings Vesturlanda. Slík vinnubrögð gagnast engum nema þjóðarmorðingjum Ísraels. Mál er að linni. Ég er ekki hlutlaus - ég veit of mikið um síonismann, framferði Ísraels og sögu Ísraelsríkis. Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína og höfundur bókarinnar Íslandsstræti í Jerúsalem. 1) Ath. að RÚV greinir ekki rétt frá - skýrslan er um meint skipulagt kynferðisofbeldi sem Hamas og samverkamenn þeirra beittu konur, börn og fjölskyldur í hrottalegri árás sinni á Ísrael þann 7. október og í gíslingunni. 2) 2009 - 2012 - 2014 - 2021 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Ríkisútvarpið Hjálmtýr Heiðdal Mest lesið Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar