Hitamet í maí slegið í Bretlandi Sigurgeir Þorkelsson skrifar 25. maí 2026 16:23 Í Gloucester-skíri var keppst um hver myndi vera fljótastur á eftir oststykki niður brekkuna. Getty Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands.
Veðurviðvaranir í gildi Veðurviðvaranir eru í gildi yfir stóran hluta Englands fram á miðvikudag vegna hitabylgjunnar. Frídagur er í Bretlandi líkt og hér á landi í dag og hafa því sumir Bretar geta létt sér lífið með því að halda niður á strönd. Hið sama er þó ekki upp á teningnum á gjörvöllum Bretlandseyjum. Hitinn mældist aðeins ellefu gráður á Hjaltlandseyjum nú síðdegis, en þar snjóaði fyrr í maí. Hitamet féll einnig í nótt í Kenley í nágrenni Lundúna þar sem hitinn fór lægt í 19,4 gráður. Hefur hitastig um nótt aldrei mælst jafn hátt áður í maímánuði. Ýtir undir loftslagskvíða ungu kynslóðarinnar BBC greinir frá því að hitabylgjan sé í ætt við það sem búast megi við eftir því sem loftslagsbreytingar ágerast. Evrópa sé sú heimsálfa sem muni hitna mest. Ástandið ýti undir loftslagskvíða, sérstaklega meðal yngra fólks. Loftslagskvíða fylgi ótti, depurð, reiði og vanmáttur, svo eitthvað sé nefnt. Fyrra maíhitamet Bretlands var frá árinu 1944 þegar hiti mældist 32,8 gráður. Er því ljóst að áttatíu og tveimur árum síðar hefur metið verið slegið um meira en heila gráðu. Eltust við oststykki í þrjátíu gráðum Þá fer fram í dag árlegt kapphlaup fram í Gloucester-skíri þar sem keppendur elta osthjól niður snarbratta brekku. Höfðu lýsendur á orði að þeir væru vanari að fylgjast með keppninni í súld en í brakandi sólskini. Ekki kemur fram að hitinn hafi haft nokkur áhrif á framkvæmd keppninnar.
Bretland Loftslagsmál Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira