Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Kjartan Kjartansson skrifar 26. maí 2026 08:54 Smárútan liggur á hliðinni nærri lestarteinunum í Buggenhout í Flæmingjalandi í Belgíu. Tvö börn eru látin, tveir fullorðnir og fimm börn eru alvarlega slösuð eftir að rútan varð fyrir lest á mikilli ferð. AP/Koen Baten Tvö börn og tveir fullorðnir eru sagðir látnir eftir að skólarúta varð fyrir lest norðvestur af Brussel í Belgíu í morgun. Sjö börn og tveir fullorðnir voru um borð í rútunni.
Jean-Luc Crucke, samgönguráðherra Belgíu, staðfesti í morgun að tvö börn á táningsaldri, ökumaður rútunnar og umsjónarmaður barnanna hefðu látist í slysinu, að því er belgíski fjölmiðillinn HLN segir. AP-fréttastofan segir að fimm börn til viðbótar hafi verið flutt alvarlega slösuð á sjúkrahús. Skólarútunni var ekið yfir lestarteina þrátt fyrir að viðvörunarljós loguðu og að vegslá væri niðri, að sögn Geerts Hermans, borgarstjóra í Buggenhout, um þrjátíu kílómetra norðvestur af Brussel þar sem slysið varð um klukkan 8:15 að staðartíma í morgun. Hundrað farþegar voru um borð í lestinni en engar fréttir eru um að þeim hafi orðið líkamlega meint af árekstrinum. Áætlað er að lestin hafi verið á um 120 kílómetra hraða þegar hún skall á smárútunni. Fréttin verður uppfærð.
Belgía Samgönguslys Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira