Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Eiður Þór Árnason skrifar 27. maí 2026 00:04 Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir tók við sem rektor Háskólans á Bifröst fyrr á þessu ári. Vísir/vilhelm Starfsfólk Háskólans á Bifröst hefur samþykkt samskiptasáttmála eftir stormasaman tíma í sögu skólans. Þar er kveðið á um óæskilega hegðun á vinnustaðnum og að ekki eigi að „gera lítið úr tilfinningum eða árangri samstarfsfólks, ræða viðkvæm málefni í áheyrn annarra, eða fara framhjá viðurkenndum boðleiðum.“ Rektor segir að sáttmálinn sé mikilvæg viðspyrna upp á við.
Margrétar Jónsdóttur Njarðvík hætti sem rektor skólans í febrúar í kjölfar harðrar gagnrýni starfsmanna og nemenda í garð hennar og fleiri stjórnenda á Bifröst. Mál Margrétar, rannsóknarstjóra skólans og forseta viðskiptadeildar gegn þremur kennurum við skólann í vetur olli ekki síst úlfúð. Rektor bað siðanefnd að kanna hvort kennararnir hefðu verið ranglega skráðir meðhöfundar að greinum og virtust stjórnendur meðal annars hafa notað gervigreindarforrit til að leggja mat á það. Félag akademískra starfsmanna lýsti yfir vantrausti á rektor og tvo aðra stjórnendur vegna málsins. Siðanefndin hreinsaði síðar starfsmennina af sök en einum þeirra var sagt upp störfum. Ástæðan var sögð trúnaðarbrestur þar sem hann hefði kennt áfanga við annan skóla en kennarinn var síðar ráðinn aftur af nýjum rektor. Einnig sökuðu nemendur og akademískir starfsmenn háskólans stjórnendur um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir tók við sem nýr rektor skólans eftir að Margrét steig til hliðar. Virða eigi mörk Fram kemur í tilkynningu á vef skólans að nýi samskiptasáttmálinn hafi verið samþykktur með öllum greiddum atkvæðum á starfsmannafundi á þriðjudag. Þar er einkum lögð áhersla á virðingu, liðsheild og umhyggju, auk þess sem talað er fyrir skýrleika við ákvarðanatöku, hreinskiptni, lausnamiðun og virðingu fyrir mörkum og verkferlum. Þar er meðal annars talað um að starfsmenn tali „við hvert annað en ekki um hvert annað“ og virði „persónuleg mörk, verkaskiptingu og viðurkennda verkferla“. Jafnframt samþykktu starfsmenn að gera ekki lítið úr tilfinningum eða áhyggjum annarra, ræða ekki persónuleg og viðkvæm málefni samstarfsfólks í áheyrn annarra, að forðast að fara inn á verksvið annarra eða „framhjá viðurkenndum boðleiðum“ og „gera lítið úr árangri eða heilindum samstarfsfólks“. Sáttmálinn hluti af viðspyrnu Eitt af yfirlýstum markmiðum samskiptasáttmálans er að „forðast „við og þau“-menningu og auka samheldni“ á vinnustaðnum og byggja upp gagnkvæmt traust meðal samstarfsfólks og á milli starfsfólks og stjórnenda. „Sáttmálanum er ætlað að vera leiðarljós í öllum samskiptum innan háskólans og efla vinnustaðamenningu hans. Sáttmálinn hefur verið í mótun með aðkomu allra starfsmanna undanfarnar vikur,“ segir á vef skólans. „Sáttmálinn er mikilvægur áfangi á leið. Við erum framsækinn og nemendamiðaður háskóli með skýra sérstöðu og markverða hlutdeild í íslensku háskólasamfélagi. Við getum borið höfuðið hátt, en verðum auðvitað líka að minna okkur á það reglulega á hvaða grunni við stöndum. Sáttmálinn er okkur mikilvæg viðspyrna upp á við og áfram veginn,“ er haft eftir Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur, rektor Háskólans á Bifröst.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Vinnustaðamenning Tengdar fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Háskólinn á Bifröst er sagður hafa ráðið aftur starfsmann sem var rekinn í sömu viku og rektor vísaði máli hans til siðanefndar skólans í vetur. Núverandi rektor segir starfsmanninn hafa verið borinn röngum sökum. 24. apríl 2026 11:03 Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. 9. febrúar 2026 20:11 Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Fleiri fréttir Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Sjá meira
Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Háskólinn á Bifröst er sagður hafa ráðið aftur starfsmann sem var rekinn í sömu viku og rektor vísaði máli hans til siðanefndar skólans í vetur. Núverandi rektor segir starfsmanninn hafa verið borinn röngum sökum. 24. apríl 2026 11:03
Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, ætlar að víkja úr starfi. Mikið hefur gengið á innan veggja skólans eftir að þrír starfsmenn voru kærðir til siðanefndar. 9. febrúar 2026 20:11
Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Nemendur og akademískir starfsmenn Háskólans á Bifröst saka stjórnendur skólans um að hafa beitt nemendur þrýstingi í því skyni að tryggja rektor skólans stuðning. Það sé aðför gegn tjáningarfrelsi nemenda og fari gegn siðareglum. Stjórnarmaður í FAB segir rektor vera búinn að „missa klefann“. 9. febrúar 2026 12:18