Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 1. júní 2026 13:32 James Merry listasmaður, Halla Tómasdóttir forseti, Björn Skúlason forsetamaki, Ingibjörg Jóhannsdóttir safnstjóri Listasafns Íslands og Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar. Eygló Gísla Menningarlífið iðar sem aldrei fyrr í Reykjavíkurborg en um helgina opnaði Listahátíð með pomp og prakt með viðburðum víða um bæinn. Fjöldi fólks kom saman að fagna listinni og lífinu og gleðin var við völd.
Hátíðin var sett á laugardag í 35. sinn við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Gestir fjölmenntu á opnunarhátíðina þar sem boðið var upp á tónlist, dans, myndlist og fjölbreytta dagskrárliði sem gáfu innsýn í það sem fram undan er á hátíðinni. Dagurinn einkenndist af gleði, eftirvæntingu og lifandi menningarlífi víðs vegar um miðborgina. Hátíðin stendur til 14. júní næstkomandi en að henni koma hátt í 1.300 listamenn frá Íslandi og erlendis frá sem skapa einstakt tækifæri til að upplifa fjölbreytta samtímalist, tónlist, sviðslistir og skapandi verkefni fyrir alla aldurshópa. Hátíðin er rétt að hefjast hér má kynna sér úrvalið betur. Björk Guðmundsdóttir og listamaðurinn James Merry opnuðu sömuleiðis sýningarnar echolalia og Ummyndlingar (e. Metamorphlings) á laugardag á Listasafni Íslands þar sem safnið er nú undirlagt af þeirra verkum. Ótal margir mættu og Halla Tómasdóttir lét sig að sjálfsögðu ekki vanta. Lára Sóley listrænn stjórnandi hátíðarinnar er í skýjunum með helgina. „Opnunarhelgin gekk frábærlega og viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum. Tvennir uppseldir tónleikar á Mahler 8 hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands með um 400 flytjendum í Hörpu, magnaðar opnanir í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands og stórkostlegt að sjá Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar sameinast á Hörputorgi í nýju tónverki Samúels Jóns Samúelssonar um 500 ungmenni. Klúbburinn opnaði á laugardagskvöldið og komust færri að en vildu. Við erum afar spennt fyrir áframhaldinu enda veislan rétt að byrja. Við erum líka gríðarlega þakklát fyrir þessar frábæru viðtökur og þátttöku um helgina,“ segir Lára Sóley. Hér má sjá vel valdar myndir frá þessum stóra og skemmtilega opnunardegi: Gestir nutu loftfimleika- og dansverksins The Air Between Us fyrir utan Hörpu á laugardag.Owen Fiene Lilja Birgisdóttir eigandi Fischersunds glæsileg á sýningu þeirra við Lækjartorg.Owen Fiene Einn af hápunktum dagsins var frumflutningur tónverksins Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson á Hörputorgi þar sem fjórar skólahljómsveitir Reykjavíkur sameinuðust í kraftmiklum flutningi með hátt í 600 ungmennum. Eygló Gísla Glæsilegir tónlistarmenn á sýningunni Loftvægi.Eygló Gísla Stappað á Mahler í Hörpu. Sunna Ben Dansverkið Move With Pride eftir Rebeccu „Ondina“ Hidalgo í samstarfi við Íslenska dansflokkinn. Verkið, sem sameinar dans, tónlist og persónulegar frásagnir, var stórbrotið sjónarspil sem hreif áhorfendur með sér. Eygló Gísla Move With Pride í Iðnó.Eygló Gísla James Merry, Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason á spjalli á Listasafni Íslands. Eygló Gísla Fischersund tók yfir litla glerhúsið.Eygló Gísla Ármann Reynisson, annar til vinstri, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á opnunina. Sunna Ben Katrín Jakobsdóttir, Skúli Helgason, Markús Þór Andrésson safnstjóri Listasafns Reykjavíkur og Heiða Björg Hilmisdóttir fráfarandi borgarstjóri. Sunna Ben Björk og James Merry opnuðu sýningarnar echolalia og Ummyndlingar (Metamorphlings) á Listasafni Íslands. Eygló Gísla Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar alltaf glæsileg. Sunna Ben Gestir grandskoðuðu verkin á Listasafni Íslands. Eygló Gísla Fjör á opnun Listahátíðar á Listasafni Reykjavíkur. Sunna Ben Lára Sóley kampa kát á opnun Listahátíðar. Sunna Ben Listamaðurinn James Merry hefur unnið með Björk í árabil og opnaði glæsilega sýningu á Listasafni Íslands. Eygló Gísla
Listahátíð í Reykjavík Menning Björk Myndlist Tónlist Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira