Hinn fjórtán ára Venni vann í Noregi Stefán Árni Pálsson skrifar 1. júní 2026 22:31 Hér má sjá Venna á verðlaunapalli fyrir miðju. Íslenski gokart-ökuþórinn Vernharður Ravnas vann glæsilegan sigur í Håsken Grand Prix sem fram fór í Andebu í Noregi um helgina. Venni átti magnaða endurkomu og stóð uppi sem sigurvegari.
Vernharður er aðeins 14 ára gamall en keppti gegn sterkustu ökumönnum Noregs í keppninni í sínum flokki, ásamt ökumönnum sem keppa reglulega erlendis á alþjóðlegum vettvangi. Helgin byrjaði þó erfiðlega fyrir Venna en hann var dæmdur aftastur í rásröð í tímatökum vegna tæknilegs formsatriðis samkvæmt norskum reglum og þurfti því að hefja keppni úr 25. sæti. Það virtist þó kveikja enn frekar í honum í hinum unga íslenska ökuþór. Byrjaði fimmti en vann Hann vann sig jafnt og þétt upp ráslistann með glæsilegum akstri. Í úrslitum ræsti hann fimmti en keyrði sig upp í fyrsta sæti og endaði á því að vinna keppnina sannfærandi. Venharð tilbúinn á ráslínu í úrslitunum. Samtals vann hann sig upp um 53 sæti yfir helgina og vakti frammistaða hans mikla athygli í norska mótorsportheiminum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá AKÍS, Akstursíþróttasambandi Íslands. „Venni sýndi Norðmönnunum virkilega hvað í honum býr og pakkaði þeim hreinlega saman. Þetta vakti mikla athygli bæði hjá þeim sem voru á staðnum og einnig hjá fólki sem fylgdist með keppninni úr fjarlægð,“ segir Ragnheiður R. Vernharðsdóttir móðir Vernharð eftir keppnina. Kom ekki á óvart „Eftir keppnina kom norski Formúlu 2-ökumaðurinn Martinius Stenshorne sérstaklega til Venna til að óska honum til hamingju með árangurinn og ræða við hann um keppnina,“ segir Jón Þór Jónsson, formaður AKÍS, og bætir við að árangur Venna hafi ekki komið honum á óvart. „Venni hefur verið hluti af afreksstarfi AKÍS í nokkurn tíma og hefur sýnt að hann býr yfir miklum hraða, einbeitingu og metnaði. Hann er með mjög skýra sýn á hvert hann stefnir og setur sér háleit markmið. Það sem skiptir líka miklu máli er að baki honum stendur sterkt teymi. Foreldrar hans og aðstoðarlið deila þessum markmiðum með honum og hafa stutt gríðarlega vel við hans vegferð,“ bætir Jón Þór við.
Akstursíþróttir Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Fótbolti Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Enski boltinn Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Sport Fleiri fréttir Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Hátt hlutfall heilaskaða hjá látnum leikmönnum Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Sjá meira