Rannsóknarnefnd mun skoða aðstæður barna á einkaheimilum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 2. júní 2026 11:37 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. vísir/Ívar Fannar Ríkisstjórnin samþykkti í morgun frumvarp um skipan rannsóknarnefndar sem mun kanna aðstæður barna sem voru vistuð á einkaheimilum fyrir tilstuðlan stjórnvalda. Forsætisráðherra segir standa til að leggja fram frumvarp um sanngirnisbætur í haust.
Á síðustu árum hefur aðbúnaður barna sem hafa verið vistuð á ýmsum opinberum heimilum verið skoðaður og margar svartar skýrslur litið dagsins ljós. Í kjölfar þess að menn sem voru vistaðir sem börn á Bakkakoti stigu fram í Kveik í upphafi ársins og lýstu grófu ofbeldi á heimilinu hófst vinna við frumvarp um rannsókn á aðstæðum barna á einkaheimilum. Frumvarp um stofnun rannsóknarnefndar sem mun skoða aðstæður barna sem voru vistuð á slíkum heimilum fyrir tilstilli stjórnvalda var samþykkt í ríkisstjórn í morgun. „Núna erum við búin að leggja til að rannsóknarnefnd verði skipuð sem á að gera úttekt á stöðu barnaverndarkerfisins frá 1947 til 2002 og getur þá skapað aðstæður í öruggu rými fyrir einstaklinga að segja sínar sögur og gera síðan úttekt á því,“ segir Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra. Langt tímabil er undir og nefndin fær heimild til þess að starfa í að minnsta kosti þrjú ár. „Við vitum ekki hvort það þurfi að framlengja þá vinnu miðað við magn upplýsinga sem gæti borist. Við gerum ráð fyrir að þau muni taka fyrir Bakkakotsmálið en það verða fleiri mál undir.“ Kristrún gerir ráð fyrir að annað frumvarp er kveður á um sanngirnisbætur verði lagt fram í haust. „Þá geta allir þeir sem hafa orðið fyrir, eða telja sig hafa orðið fyrir, miska af hálfu hins opinbera sem börn sótt um. Það þarf ekki að hafa farið fram opinber rannsókn til þess að þú eigir rétt á slíkum bótum en það er annað frumvarp.“ Þegar Bakkakotsmálið kom upp ákvað ríkisstjórnin einnig að bjóða þeim sem voru vistaðir á heimilinu sálfræði- og áfallaaðstoð. Kristrún segir það hafa gefist vel. „Það hafa átt sér stað skimanir á Landspítala sem hafa síðan leitt til þess að fólki er vísað í langvarandi meðferð. Mér skilst að það hafi gengið ágætlega og þetta verður mögulega grunnur að frekari úrræðum sem við leggjum til samhliða sanngirnisbótafrumvarpinu, vegna þess að við vitum að þó að fjárhagur skipti máli, skiptir andleg heilsa og félagslegur stuðningur líka máli,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.
Mál fósturbarna á Bakkakoti Vistheimili Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira