Besta gengi Ítala á risamóti Andri Broddason skrifar 2. júní 2026 20:03 Matteo Arnaldi vann brábærann sigur í gær og komst í 8-liða úrslit á Opna franska mótinu í tennis. Ibrahim Ezzat/NurPhoto via Getty Images Í fyrsta skipti í sögunni eru þrír Ítalir í 8-liða úrslitum á risamóti í tennis. Þetta eru leikmennirnir Matteo Berrettini, Flavio Cobolli og Matteo Arnaldi.
Ítölum hefur aldrei gengið jafn vel á risamóti og núna á Opna franska mótinu í tennis. Þrátt fyrir að Ítalinn Jannik Sinner, sem er efstur á heimslistanum, sé dottinn úr mótinu. Því miður getur ekki verið úrslitaleikur milli tveggja Ítala því allir eru þeir á sama væng á Opna franska mótinu í tennis. Matteo Berrettini og Matteo Arnaldi mætast í 8-liða úrslitum. For the first time in history, three Italian men have reached the quarterfinals of the same Grand Slam tournament.Matteo Berrettini.Flavio Cobolli.Matteo Arnaldi.What a moment for Italian tennis.🇮🇹🇮🇹🇮🇹 pic.twitter.com/l9eNSf4x3Q— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) June 2, 2026 Arnaldi kemur í leikinn eftir maraþonleik gegn Bandaríkjamanninum Frances Tiafoe. Þar var Tiafoe nálægt því að vinna leikinn en Arnaldi svaraði í lokin og vann síðustu tvö settin. Leikurinn varði í fimm og hálfa klukkustund. Mótherji hans í 8-liða úrslitum er Berrettini. Hann fékk auðveldari leik og vann sinn mótherja í aðeins þrem settum. Flavio Cobolli mætir Kanadamanninum Felix Auger-Aliassime sem er sigurstranglegur á mótinu og í fjórða sæti heimslistans. Ef Cobolli gerir sér lítið fyrir og vinnur Auger-Aliassime mætir hann sigurvegaranum úr leik Arnaldi og Barrettini. Ein af ástæðunum fyrir velgengni Ítala í tennis er að ítalska tennissambandið gjörbreytti kerfinu sínu fyrir um fimmtán árum. Í staðinn fyrir að hafa eina akademíu í landinu þar sem öllum efnilegum leikmönnum er safnað saman er frekar verið að bæta aðstöðu leikmanna hjá sínum félögum. Kostnaður við einstaklingsíþróttir getur verið mikill þar sem leikmenn þurfa sjálfir að borga ferðalög. Til að minnka kostnað hjá ítölskum leikmönnum voru haldin fleiri mót á Ítalíu þar sem leikmenn geta unnið sig upp stigalistann í tennis með lægri ferðakostnaði. Þessi nýja aðferð ítalska tennissambandsins hefur greinilega skilað sér þar sem Ítalía er með sex leikmenn af efstu hundrað á ATP túrnum.
Tennis Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Leik lokið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú keflvísk mörk á níu mínútum Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Margfaldir meistarar fóru í hlutverk kylfusveina fyrir Íslandsmótið Lukaku lætur ekki sjá sig Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Alcaraz dregur sig aftur úr keppni Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Sjá meira