Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 5. júní 2026 08:02 Tristan Freyr er kominn aftur á völlinn. Taka þarf hatt sinn ofan fyrir þrautseigju hans eftir fjögurra ára meiðsli. Vísir/Lýður Valberg Tristan Freyr Ingólfsson hafði ekki spilað deildarleik í fjögur ár þegar hann steig á völlinn með Gróttu í Lengjudeild karla í vor. Hann segir ólýsanlegt að geta spilað leikinn sem hann elskar aftur eftir erfið meiðsli.
Tristan Freyr spratt fram á sjónarsviðið með Stjörnunni sumarið 2021 en sleit krossband í fyrsta sinn það sumar. Hann hefur síðan þá slitið krossband þrisvar og farið í fimm aðgerðir. Eftir fjögur ár utan vallar hefur hann komist af stað og verið frábær í liði Gróttu sem hefur leikið vel í Lengjudeildinni. Tristan hefur þá skorað þrjú mörk í tveimur leikjum í bikarnum þar sem Grótta er komin í 8-liða úrslit og er aðeins sigri á Fylki frá undanúrslitum. En kom honum á óvart að Grótta skildi taka séns á honum í vetur? „Ég var ekki leikfær þegar ég kom hingað. Ég vissi ekkert hvar ég myndi enda í vetur en er ógeðslega þakklátur að þeir hafi tekið sénsinn á mér. Þeir hafa stutt mig í gegnum það og leyft mér að komast rólega af stað. Ég er hrikalega þakklátur að þeir hafi tekið sénsinn á mér,“ segir Tristan. Kominn með ógeð af styrktarsölum Tristan sleit fyrst krossband sumarið 2021 en tókst að komast út á völl með Stjörnunni sumarið 2022. Þá komst hann aðeins í gegnum þrjá leiki áður en krossbandið slitnaði aftur og hann hafði, þar til nú í vor, ekki spilað deildarleik síðan. Hann sleit nefnilega í þriðja sinn á æfingu 2024. Segja má að Tristan sé þaulæfður í endurhæfingarferli. „Ég þekki það aðeins of vel. Ég er kominn algjört ógeð af styrktarsölum yfirhöfuð,“ segir Tristan léttur. En hvernig fer maður að því að komast í gegnum fjögur ár af því að vera meiddur? „Ég veit það ekki alveg. Þrjóska, mikil þrjóska, ég var alveg spurður „ætlarðu virkilega að fara aftur í gegnum þetta?“ Ég skil það alveg vel. En mér finnst það ótrúlega gaman í fótbolta að ég vildi halda áfram,“ „Tilfinningin að vera byrjaður aftur að spila er ólýsanleg. Svo er það stuðningur frá vinum, fjölskyldu, kærustu og öllum. Það er bara ómetanlegt,“ segir Tristan. Fréttina má sjá í spilaranum að ofan.
Grótta Lengjudeild karla Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira