Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 9. júní 2026 11:32 Cara Delevingne rifjaði upp samtal við Harvey Weinstein í þættinum Call her daddy. Getty/Samir Hussein/Spencer Platt Breska ofurfyrirsætan Cara Delevingne hefur marga fjöruna sopið á sinni lífsleið. Cara er fædd árið 1992 og tilheyrir breskri yfirstéttarfjölskyldu þar sem allt leit vel út á yfirborðinu en innan veggja heimilisins voru mikil átök. Cara opnaði sig upp á gátt í hlaðvarpinu „Call her daddy“ á dögunum og leyndi engu.
Viðtalsþáttunum Call her daddy, sem hafa notið mikilla vinsælda, er stýrt af Alex Cooper en hún er nú orðin heimsfræg hlaðvarpsstýra og var sjálf með heimildarmynd um líf sitt á Netflix. Í þáttunum fær hún viðmælendur sína gjarnan til að opna sig upp á gátt og ræða erfiða lífsreynslu. Cara ræddi meðal annars um uppvaxtarárin og móður sína sem glímdi við mikil andleg veikindi og heróín-fíkn. Cara varð fyrst drukkin átta ára gömul og byrjaði ung að fikta við eiturlyf sem þróaðist síðar út í mikinn fíknivanda. Árið 2022 sást hún í mjög annarlegu ástandi á Van Nuys flugvellinum í Los Angeles. Myndbönd og myndir af hegðun hennar vöktu töluverða athygli víða um heim og segist Cara þarna hafa fengið flog í kjölfar fráhvarfa eftir að hafa verið á tónlistarhátíðinni Burning Man í eyðimörkinni í Kaliforníu. Cara ákvað að leita sér hjálpar, hefur nú verið edrú í nokkur ár og aldrei liðið betur. Í hlaðvarpinu fer hún yfir langan ferilinn en hún skaust upp á stjörnuhimininn árið 2011, þá nítján ára gömul, þegar hún varð andlit breska hátískuhússins Burberry. Hún hefur sömuleiðis leikið í kvikmyndum og gefið út tónlist og vinnur nú hörðum höndum að nýjum lögum. Cara er í sambandi með stelpu og segist ung hafa vitað að hún væri samkynhneigð. Bransinn hafi hinsvegar gert henni erfitt fyrir að vera sönn sjálfri sér og rifjar hún sem dæmi upp samtal við kvikmyndaframleiðandann og nú dæmda kynferðisafbrotamanninn Harvey Weinstein. „Á þessum tímapunkti vildi bransinn ekki að ég væri samkynhneigð. Þegar ég var að byrja leikkonu-ferilinn hringdi Harvey Weinstein í mig og sagði: „Þú getur ekki verið lesbía. Þú getur ekki verið með konum, þá verðurðu aldrei leikkona. Þú verður aldrei ráðin. Við verðum að finna kærasta fyrir þig,“ rifjar Cara upp.
Hinsegin Hollywood Mál Harvey Weinstein Mest lesið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Í jólaskapi í júní Menning Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Fleiri fréttir Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Sjá meira