Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Áróra L Davíðsdóttir skrifar 9. júní 2026 13:36 Ásta Ólafsdóttir og Sigurður Pétur Oddsson, nýir leiðtogar hjá Ljósleiðaranum. Ljósleiðarinn/Einar Örn Ásta Ólafsdóttir og Sigurður Pétur Oddsson hafa gengið til liðs við Ljósleiðarann. Ásta sem forstöðukona Sölu og þjónustu og Sigurður sem leiðtogi sölu og viðskiptaþróunar, segir í fréttatilkynningu frá Ljósleiðaranum. „
Ásta kemur til starfa með víðtæka reynslu af stjórnun, sölu og þjónustu,“ segir í tilkynningunni. „Undanfarin ár hefur hún starfað hjá Origo, fyrst sem þjónustustjóri í skýja- og netrekstri og síðar sem forstöðukona rekstrarþjónustu. Þar leiddi Ásta öflug teymi með áherslu á framúrskarandi þjónustu, öruggan rekstur í hröðu tækniumhverfi og sterkt samstarf við viðskiptavini.“ Áður starfaði Ásta hjá Nova í um níu ár þar sem hún gegndi stjórnunarhlutverkum og leiddi meðal annars sölu- og þjónustu á bæði einstaklings- og fyrirtækjamarkaði. „Ljósleiðarinn er spennandi fyrirtæki með mikilvægt hlutverk í samfélaginu okkar. Ég hef alla tíð lagt áherslu á framúrskarandi upplifun viðskiptavina og hlakka til að vinna með öflugu starfsfólki að því að efla þjónustuna enn frekar og styðja við áframhaldandi vöxt félagsins,“ segir Ásta í tilkynningunni. Sigurður starfaði áður hjá Isavia þar sem hann lagði áherslu á upplifun farþega, stafræna þróun og umbætur í rekstri. Hann er með meistaragráðu í markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst og BS-gráðu í viðskiptafræði. „Sigurður er með víðtæka reynslu af viðskiptaþróun, nýsköpun og þróun þjónustu- og tæknilausna.“ „Ég er mjög spenntur að ganga til liðs við Ljósleiðarann. Íslenskt samfélag treystir á innviði Ljósleiðarans á hverjum degi og félagið gegnir lykilhlutverki í stafrænni uppbyggingu landsins. Tækifærin fram undan eru gríðarleg og ég hlakka til að vinna með framúrskarandi teymi Ljósleiðarans að áframhaldandi vexti, sterkum viðskiptasamböndum og þróun lausna sem skapa virði fyrir viðskiptavini og samfélagið í heild,“ segir Sigurður í tilkynningunni.
Fjarskipti Vistaskipti Mest lesið Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira