Tryggvi Gíslason er látinn Atli Ísleifsson skrifar 10. júní 2026 07:13 Tryggvi Gíslason gegndi lengi stöðu skólameistara Menntaskólans á Akureyri. Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari Menntaskólans á Akureyri, er látinn, 87 ára að aldri.
Greint var frá andlátinu í Vikublaðinu í gær, en Tryggvi lést á líknardeild aldraðra á Landakoti á mánudag. Tryggvi fæddist á Norðfirði 11. júní 1938, sonur hjónanna Fannyjar Kristínar Ingvarsdóttur, húsfreyju frá Ekru í Norðfirði, og Gísla Kristjánssonar, útvegsbónda frá Sandhúsi í Mjóafirði, og átti hann fimm systkini. Fjölskyldan bjó á Norðfirði þar til Tryggvi var sjö ára, en þá flutti hún til Akureyrar. Tryggvi útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1958 og lauk svo meistaraprófi í íslensku frá Háskóla Íslands 1968 með málfræði og norræn fræði sem sérgreinar. Hann stundaði svo nám í málvísindum við Háskólann í Björgvin í Noregi 1968 til 70 þar sem hann kenndi einnig norrænu. Hann lærði svo sögu, heimspeki og málvísindi við Edinborgarháskóla í Skotlandi á árunum 1994 til 1995. Tryggvi var skipaður skólameistari við MA árið 1972, þá 34 ára gamall, og gegndi stöðunni allt til ársins 2003. Áður hafði hann meðal annars starfað sem blaðamaður við Tímann og Ríkisútvarpið. Hann var svo bæjarfulltrúi á Akureyri á árunum 1978 til 82 og deildarstjóri í skóla- og menningarmáladeild Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn 1986 til 90. Auk þess var hann formaður Háskólanefndar Akureyrar 1980 til 86, formaður stjórnar Hollvinasamtaka RÚV um tíma og svo formaður stjórnar Menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal frá 2003. Tryggvi kvæntist Margréti Eggertsdóttur kennara árið 1959 og eignuðust þau sex börn – Arnheiði kennara, Eggert rekstrarverkfræðing, Fanny Kristínu sagnfræðing, Gísla lögfræðing, Tryggva viðskiptafræðing og Svein rekstrarverkfræðing. Barnabörnin eru átján og barnabarnabörnin sjö.
Andlát Akureyri Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira