Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Kjartan Kjartansson skrifar 11. júní 2026 11:09 Sænska lögreglan glímir við glæpagengi sem beita meðal annars fyrir sig unglingum sem þau fá til fylgilags við sig á samfélagsmiðlum. Sænsk stjórnvöld vilja lækka sakhæfisaldurinn til þess að geta refsað afbrotaunglingum frekar. Myndin er úr safni. Vísir/EPA Sænska ríkisstjórnin hefur dregið til baka frumvarp sem hefði lækkað sakhæfisaldur niður í þrettán ár þar sem verulegar líkur voru á að það yrði fellt á þingi. Í staðinn ætlar hún að leggja fram nýtt frumvarp um að lækka aldurinn í fjórtán ár í sumar.
Sænska þingið átti að greiða atkvæði um frumvarp minnihlutastjórnar Ulfs Kristersson, forsætisráðherra, um að lækka tímabundið sakhæfisaldur úr fimmtán árum í þrettán. Frumvarpið hefur reynst umdeilt en því var ætlað að bregðast við glæpaöldu á meðal ungmenna sem glæpagengi notfæra sér í auknum mæli til ýmissa skítverka, þar á meðal manndrápa og sprengjutilræða. Gunnar Strömmer, dómsmálaráðherra, sagðist gera ráð fyrir að breið samstaða gæti náðst um frumvarp sem gengi skemmra og lækkaði aldurinn niður í fjórtán ár. „Ég held að það sé ábyrg leið til þess að taka á málinu,“ segir Strömmer á blaðamannafundi í morgun. Jafnaðarmannaflokkurinn, sem mælist með mest fylgi í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar sem fara fram í september, er fylgjandi því að lækka sakhæfisaldurinn í fjórtán ár. Aðrir stjórnarandstöðuflokkar vilja ekki hrófla við aldrinum, að því er segir í frétt sænska ríkisútvarpsins. Verði nýtt frumvarp að lögum tekur það gildi í september.
Svíþjóð Erlend sakamál Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira