Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Freyja Þórisdóttir skrifar 11. júní 2026 17:27 Marteinn flutti erindi í Lögbergi á vegum Miðaldastofu Háskóla Íslands í janúar 2019 en þá hafði hann nýlega unnið að útgáfu Jómsvíkingasögu í ritröðinni Íslensk fornrit ásamt Þorleifi Haukssyni. Aðsend Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum við Cambridge-háskóla, er fallinn frá, fimmtíu og fimm ára að aldri. Heimildarmyndin Veðurskeytin er byggð á reynslu Marteins en hann greindist skyndilega með geðhvörf fyrir nokkrum árum og fjallar myndin um vegferð hans í kjölfar greiningarinnar. Marteinn greindist með krabbamein á lokastigi fyrir um tveimur árum og voru honum einungis ætlaðir nokkrir dagar ólifaðir.
Arngrímur Vídalín, dósent í íslenskum miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands, minnist Marteins í fallegri færslu á Facebook. Þar segir hann frá því að Marteinn hafi látist um liðna helgi eftir tveggja ára glímu við krabbamein. „Alltaf var hann jafn vígreifur og orkumikill í samtölum okkar, líkt og ekkert bjátaði á. Ég var farinn að halda hann alveg ódrepandi þar sem hann hafði lifað tveim árum lengur en honum hafði verið spáð, en enginn fær umflúið sín örlög,“ skrifar Arngrímur um vin sinn. Í færslunni minntist hann á greinar Marteins og segir þær standa eftir sem og heimildarmynd Bergs Brenburg, Veðurskeytin, á e. Storm Alerts, sem „varðveiti mynd af marglaga persónuleika míns kæra vinar“. Kvikmyndin var sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam í janúar 2025, síðar var hún opnunarmynd Stockfish kvikmynda- og bransahátíðarinnar, sem var jafnframt frumsýning myndarinnar á Íslandi, í apríl sama árs. „Farðu heim og deyðu pakki“ Í minningargrein sem birt var á vef Háskólans í Árósum og skrifuð af Richard Cole, kollega Marteins, segir að uppgötvast hafi að Marteinn væri með krabbamein þegar það var á lokastigi og að honum hafi í fyrstu aðeins verið ætlaðir nokkrir dagar ólifaðir. „Á dæmigerðan danskan hátt var hann sendur heim með poka af verkjalyfjum (almennt kallaður tryghedspakke „öryggispakki“, en Marteinn kallaði hann hjem-og-dø pakke „farðu heim og deyðu pakki“). Slíkur var lífskrafturinn í honum að pakkinn gerði ekki út af við hann,“ skrifar Richard. Því næst segir hann frá því að hann hafi farið í lyfjameðferð þrátt fyrir að von um lækningu hafi verið lítil sem engin. Hann hafi svo lifað í tvö ár þegar fyrstu læknisfræðilegu álitsgjafar hafi litið sem svo á að hann væri heppinn að lifa tvo heila daga frá greiningu. „Á mínum bjartsýnustu stundum sé ég hann bíða eftir okkur með stóran bjór af einhverju dökku, kröftugu bruggi, með sjálfofna sígarettu hangandi kæruleysislega í munnvikinu og með aðra, hneykslanlega túlkun á sögunum sem hann hefur geymt einmitt fyrir þetta tækifæri,“ skrifar hann. Snerti á ýmsu í greinum sínum Í samtali við blaðamann Vísis segir Arngrímur að Marteinn hafi ásamt Þorleifi Haukssyni gefið út Jómsvíkingasögu á íslensku en hún kom út árið 2018 á vegum Hins íslenzka fornritafélags. Stytta af Guðmundi góða Arasyni á Hólum, listaverk Gunnfríðar Jónsdóttur (1889-1968), myndhöggvara, gerð árið 1945.Kirkjublaðið.is Arngrímur segir frá því að hann hafi einnig verið meðal þeirra fyrstu til að skrifa ítarlega um Jón Halldórsson biskup, meistararitgerðin hans hafi fjallaði um hann. Doktorsritgerðin hans hafi svo verið um guðinn Týr sem hann teldi ekki vera af heiðnum uppruna heldur „eftirkristileg uppfinning“. Marteinn skrifaði einnig um samanburði á Gretti sterka og Guðmundi góða Arason biskup en síðasta greinin sem hann birti fjallaði um tengslin á Klári sögu og meistara Perusar, persónu í sögunni, við Jón Halldórsson biskup, en sú grein kom út 2021. Marteinn lauk fyrstu háskólagráðu sinni frá Háskóla Íslands, þar sem hann stundaði sameiginlegt nám í guðfræði og þjóðfræði. Seinna hélt hann til St. Andrews -háskóla í Skotlandi en þar stundaði hann framhaldsnám á sviði miðaldasagnfræði. Loks hóf Marteinn doktorsnám við Cambridge-háskóla en að loknu náminu tók Marteinn við stöðu lektor hjá Árnasafni í Kaupmannahöfn.
Andlát Bretland Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Björk og Yara nýtt par Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Sjá meira