Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Lovísa Arnardóttir skrifar 12. júní 2026 10:37 Loðnuveiðar með Beiti NK. Myndin er úr safni. Vísir/Sigurjón Hafrannsóknastofnun leggur aftur til hækkun á loðnuráðgjöf í nýrri úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lagt er til aflamark fyrir á annan tug stofna á grundvelli langtímamarkmiða íslenskra stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu. Ráðgjöf ýsu, ufsa og þorsks lækkar en veruleg hækkun er á loðnuráðgjöf.
Hafrannsóknastofnun lagði í janúar til að til að rúm 197 þúsund tonn af loðnu yrðu veidd á þessu fiskveiðiári. Upphaflega lagði hún til innan við fimmtíu þúsund tonna hámarksafla. Nú er lagt til að upphafsaflamark fyrir loðnu á komandi vetrarvertíð samkvæmt aflareglu strandríkja verði 358.044 tonn, sem er 81 prósenta aukning frá lokaráðgjöf seinasta fiskveiðiárs. Ráðgjöfin fyrir loðnu verður uppfærð fyrir næstu vertíð að lokinni haustmælingu samkvæmt tilkynningu Hafrannsóknarstofnunar. Lækkun á þorski og ýsu Hafrannsóknastofnun ráðleggur eins prósenta lækkun aflamarks þorsks fiskveiðiárið 2026/2027. Fylgir sú ráðgjöf aflareglu íslenskra stjórnvalda. Ráðlagður heildarafli lækkar úr 203 822 tonnum á yfirstandandi fiskveiðiári í 201 674 tonn. Ekki er gert ráð fyrir að ráðlagður heildarafli þorsks aukist næstu tvö til þrjú árin, en fyrir því eru tvær ástæður samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. Annars vegar séu árgangar frá 2021 og 2022 metnir undir meðallagi og hins vegar séu árgangarnir frá 2019 til 2021 hægvaxta, sem talið er tengjast minni stofnstærð loðnu undanfarin ár. „Því er vænt framlag þeirra árganga í lífmassa viðmiðunarstofns minna en fyrir eldri árganga í sama fjölda,“ segir um ráðgjöfina á vef Hafrannsóknarstofnunar. Hvað varðar ýsu verður aflamark hennar 63 206 tonn, sem er 20 prósenta lækkun á ráðgjöf frá yfirstandandi fiskveiðiári. Lækkunin er komin til vegna þess að stærð viðmiðunarstofns ýsu (45 cm og stærri) hefur minnkað frá því að hann náði hámarki árið 2024. Lækkunin kemur í kjölfar minni nýliðunar árin 2022-2024. Því er ekki búist við að stofninn stækki á næsta ári. Vísbendingar eru um að árgangurinn frá 2025 sé stór samkvæmt tilkynningu Hafrannsóknarstofnunar. Þá er einnig töluverð lækkun á ráðgjöf fyrir ufsa, eða 16 prósent frá yfirstandandi fiskveiðiári og er nú 49 887 tonn. Samdráttur í ráðgjöfinni í ár er vegna lækkaðs mats á stærð viðmiðunarstofns ufsa (4 ára og eldri). Hærri ráðgjöf fyrir gullkarfa Ráðgjöf fyrir gullkarfa er 43 319 tonn eða fimm prósentum hærri en á yfirstandandi fiskveiðiári. Í tilkynningu segir að þessa hækkun megi að hluta rekja til hærri stofnvísitölu að hausti seinustu þrjú ár samanborið við árin þar á undan. Metin stærð árganga gullkarfa frá árunum 2009 til 2016 sé lág og af þeim sökum hafi hrygningarstofn minnkað frá árinu 2018. Vísbendingar séu um aukna nýliðun en ekki er búist við að þeir árgangar skili sér í veiðistofninn fyrr en eftir nokkur ár. Þá er áfram lagt til að aflamark djúpkarfa verði núll tonn þar sem hrygningarstofninn er metinn undir varúðarmörkum. Ekki er búist við því að stofninn fari yfir varúðarmörk á næstu árum. Ráðgjöf fyrir grálúðu er nær óbreytt frá fyrra ári, 21 079 tonn. Útlit er fyrir aukningu á stofnstærð á næstu árum vegna aukinnar nýliðunar. Ráðgjöf um aflamark íslensku sumargotssíldarinnar fyrir komandi fiskveiðiár lækkar um 22 prósent og er 80 307 tonn. Ástæðan er sú að vægi stórra árganga frá 2017 til 2019 í viðmiðunarstofni minnkaði frá fyrra ári og því er stofnstærðin metin minni í ár. Í tilkynningu segir að ekki sé búist við miklum breytingum á stofnstærð á næsta ári. Vandamál tengd bergmálsmælingum árin 2024 til 2025 leiði auk þess til aukinnar óvissu í stofnmati. Ráðgjöfina í heild sinni má nálgast á vef Hafrannsóknastofnunar undir Ráðgjöf. Verði að huga að rannsóknum Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segir í tilkynningu um ráðgjöfina að þrátt fyrir lækkun í ráðgjöf fyrir nokkrar af mikilvægustu nytjategundum okkar, þar á meðal þorsk, ýsu, ufsa og síld samdrátt í ráðgjöf stærstu nytjastofnanna séu jákvæð teikn í ráðgjöf nokkurra annarra stofna. „Ráðgjöf fyrir löngu og keilu hækkar um 21% milli ára og ráðgjöf fyrir gullkarfa hækkar um 4,8%. Þá hækkar ráðgjöf fyrir skarkola um 1% og fyrir grálúðu um 0,4%. Mest hækkar ráðgjöf fyrir blálöngu, úr 307 tonnum í 1.898 tonn, sem jafngildir 522% hækkun milli ára. Nýlega hefur verið tekin upp ný stofnmatsaðferð fyrir blálöngu,” segir í tilkynningunni. Þar segir að áfram þurfi að byggja ákvarðanir um nýtingu fiskistofna á niðurstöðum vísinda „Niðurstöðurnar undirstrika enn á ný mikilvægi öflugra og vandaðra hafrannsókna. Óvissa um stöðu stofna leiðir óhjákvæmilega til varkárari nýtingar og getur haft veruleg áhrif á verðmætasköpun í sjávarútvegi og þjóðarbúinu öllu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hvetja stjórnvöld því til að standa vörð um hafrannsóknir og tryggja að nauðsynlegir fjármunir séu til staðar fyrir rannsóknir og vöktun nytjastofna. Á því hefur orðið misbrestur og úr því þarf að bæta,“ segir að lokum.
Sjávarútvegur Hafrannsóknastofnun Loðnuveiðar Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Sjá meira