Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Kjartan Kjartansson skrifar 15. júní 2026 12:34 Kona dinglar í reipi í reipistökki úr Deriner-stíflunni í Tyrklandi, Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Vísir/Getty Ung kona hrapaði til bana í Brasilíu eftir að kennarar hennar í svonefndu reipistökki virtust hafa gleymt að festa reipið við hana. Dauði konunnar er rannsakaður sem manndráp af gáleysi.
Þrír menn voru handteknir vegna dauða Maríu Eduördu Rodrigues de Freitas á laugardag. Myndband af því þegar hún hrapaði fjörutíu metra ofan af gamalli brú fór í kjölfarið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Slysið átti sé stað á Esqueleto-brúnni í Sao Paulo-ríki. Á upptöku af því sem var í umferð á samfélagsmiðli mátti heyra áhorfanda öskra í örvæntingu á kennarana að festa reipið eftir að þeir slepptu henni fram af hengifluginu. Lögreglan rannsakar hvort kennaararnir hafi gerst sekir um manndráp með háskaleik. Þeir hafi ekki haft ásetning til þess að drepa konuna en að þeir hafi hætt lífi hennar, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins sem hefur það eftir brasilíska miðlinum Globo. Reipistökki svipar til teygjustökks en í því er notað reipi sem er minna teygjanlegt en teygjan. Í stað þess að skoppa upp og niður í teygjunni sveiflast iðkendur eins og pendúll þegar neðsta punkti er náð. Brúin sem konan stökk fram af hefur ekki verið í notkun í fjölmörg ár og er á ábyrgð brasilískra alríkisyfirvalda. Borgaryfirvöld í borginni Limeira segjast ætla að stefna alríkisstjórninni fyrir að vanrækja brúna.
Brasilía Erlend sakamál Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira