Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ Freyja Þórisdóttir skrifar 15. júní 2026 15:07 Þorbjörn yfirlæknir og Björn forsetaherra eru báðir sammála um að framlög blóðgjafa skipti sköpum. Facebook/Björn Skúlason/Vísir/Anton Brink Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er einn þeirra sem vakið hafa athygli á því að alþjóðlegi blóðgjafadagurinn hafi verið í gær, þann 14. júní. Blóðbankinn flutti í vetur af Snorrabraut í Reykjavík og yfir í Kringluna en aðstaðan er stórbætt og mun auðveldara fyrir blóðgjafa að koma og gefa blóð, að sögn yfirlæknis. Það sé alltaf vöntun á fleiri blóðgjöfum og hann hvetji alla til að kynna sér hvort þeir geti mögulegir orðið gjafar.
Blóðsöfnunarhluti blóðbankans, sá hluti sem almenningur mætir í til þess að gefa blóð, var fluttur í Kringluna í september 2025 en hann var áður til húsa við Snorrabraut 60 í Reykjavík. Þorbjörn Jónsson, yfirlæknir blóðbanka- og ónæmisfræðiþjónustu Landspítalans segir miklu hafa munað um flutninginn. „Við horfum bara björt fram á veginn, þetta er stórbætt aðstaða með flutningi í Kringluna og það er náttúrulega sérstaklega fyrir blóðgjafana sem að eru oft að taka annaðhvort af eigin frítíma eða af vinnutíma vinnuveitanda síns. Þá skiptir máli að það sé gott aðgengi, maður þurfti að leita að bílastæðum og slíkt,“ segir hann og ítrekar að aðstaðan sé mun betri eftir flutningana og að þau séu mjög ánægð með það. Björg opni nýjar dyr Fyrr í vor, nánar tiltekið þann 18. maí, var greint frá því í tilkynningu að nýr Blóðbankabíll hefði litið dagsins ljós en þar segir að hann sé „hannaður með sjálfbærni, sveigjanleika og aukið aðgengi að leiðarljósi“. Hann sé ekki háður rafmagnstengingu á söfnunarstað enda nýti hann meðal annars eigin raforku með sólarsellum. „Við fengum nýjan lítinn Blóðbankabíl sem verður með á NorðurNorður- og Austurlandi,“ segir hann og bætir við að „við bindum vonir við það að við getum svo farið á staði sem við höfum kannski ekki náð að þjónusta eins vel áður, þannig að við vonum að á þessu ári verði þjónustan betri við blóðgjafana og að það gangi betur heldur en hefur verið undanfarin ár.“ Heimastöð bílsins, sem hefur hlotið nafnið Björg, verður á Akureyri en þar var blóðbankinn færður af sjúkrahúsinu og yfir á Glerártorg þann áttunda febrúar árið 2018. Þorbjörn segir að með tilkomu nýja bílsins verði hægt að fara á staði sem hefur hingað til verið erfiðara að heimsækja. Margt sem spili inn í Hann segir blóðgjöfum ekki vera að fækka en að á móti komi að Íslendingum sé að fjölga og þeir séu sömuleiðis að eldast. Það spili einnig inn í bæði að hingað komi sífellt fleiri ferðamenn og að fólk ferðist meira nú en áður fyrr og að þá sé algengara að fólk megi ekki gefa blóð í nokkra mánuði við komuna heim aftur. „Þjóðin er að eldast og okkur er að fjölga heilmikið líka. Þetta útheimtir auðvitað þá meiri blóðnotkun og við þurfum sífellt að standa okkur betur í því að afla nýrra blóðgjafa og svo skiptir auðvitað líka máli í þessu sambandi eins og öðru, það er náttúrulega stóraukinn fjöldi ferðamanna,“ segir hann og útskýrir nánar að „því þeir verða náttúrulega veikir eins og aðrir og lenda í slysum og geta þurft blóð, við þurfum að geta þjónustað þennan hóp líka.“ Mikilvægt að treysta ekki alfarið á aðra Það sé margt sem komi til og að stanslaust þurfi að bæta í raðirnar í stað þeirra sem hætta að gefa blóð vegna aldurs, veikinda, nýrra lyfja eða annars slíks. Svo sé það í grunninn mikilvægt fyrir Íslendinga að vera sjálfum sér nógir. „Því að ef það kemur, verður einhver bráður skortur eða eitthvað ókunnugt sé, að þá tekur það alltaf tíma, jafnvel þó að við getum nálgast þetta hjá nágrannaþjóðum, að þá tekur það allt marga klukkutíma,“ segir Þorbjörn. Það vanti nýja gjafa á hverju einasta ári enda séu aldurstakmörk og margir sem gefi reglulega blóð „detti út um stund“ sem gjafi. „Við erum að ferðast meira út um allan heim sem getur haft það í för með sér að þú megir ekki gefa blóð kannski í þrjá mánuði eða sex mánuði eða eitthvað slíkt af því þú hafir verið á einhverjum svæðum þar sem einhverjir smitsjúkdómar eru algengari heldur en annars staðar,“ útskýrir hann. Alltaf pláss fyrir gæðablóð Hann hvetji fólk til að kynna sér hvort það megi gefa blóð og kíkja í Blóðbankann, „það sé um að gera“. Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, eigandi heilsufyrirtækisins Just Björn og nú nýlegast hlaðvarpsstjórnandi Allt í lagi í samstarfi við Hugarafl, er einn þeirra sem hefur hvatt samlanda sína til þess að gerast blóðgjafar í tilefni alþjóðlega blóðgjafadagsins. „Samfélagið okkar vex og dafnar þegar við erum til staðar hvert fyrir annað. Blóðgjafar gera það á einstakan hátt – með því að gefa af sjálfum sér og hjálpa fólki sem þeir þekkja ekki og munu líklega aldrei hitta,“ skrifar hann. „Ég vil þakka öllum þeim sem gefa blóð. Framlag ykkar skiptir sköpum og gefur öðrum von og ný tækifæri. Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð.“
Heilbrigðismál Blóðgjöf Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira