Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Lovísa Arnardóttir skrifar 15. júní 2026 15:25 Marius Borg Høiby á leið til fundar við lögmenn sína í janúar á þessu ári. Vísir/AP Marius Borg Høiby, sonur krónprinsessu Noregs, ætlar að áfrýja fjögurra ára fangelsisdómi sem hann hlaut í morgun fyrir nauðganir og fleiri afbrot. Saksóknarar höfðu krafist rúmlega sjö og hálfs árs refsingar yfir honum.
Høiby var sýknaður af tveimur ákærum um nauðgun, í Lofoten-máli og á hóteli í Osló. „Hann er að sjálfsögðu mjög ánægður með að um tiltölulega umfangsmiklar sýknur sé að ræða. En það eru aðrir hlutir sem hann er ekki jafn ánægður með og sem hann hefur ákveðið að áfrýja,“ er haft eftir verjanda hans, Petar Sekulic, í frétt NRK. Þar kemur fram að áfrýjunin varði nauðganirnar tvær sem hann var dæmdur fyrir, auk ofbeldis í nánu sambandi. „Hann er alveg á því að þolandi þar hafi ekki verið beittur neinni stjórn,“ segir Sekulic um ofbeldi í nánu sambandi og að Høiby sé sannfærður um að hann sé ekki sekur í nauðgunarmálunum. Þar sem Høiby hefur áfrýjað er dómurinn ekki endanlegur. Áfrýjunardómstóllinn á enn eftir að taka afstöðu til áfrýjunarinnar. Lögmenn Høiby, Ellen Holager Andenaes , til hægri, og Petar Sekulic, til vinstri. Myndin er tekin eftir að þeir funduðu með prinsinum í dag. Vísir/EPA Vonuðu að dómurinn yrði endanlegur í héraði Í frétt NRK er haft eftir lögmönnunum John Christian Elden og Heidi Reisvang hjá Elden Advokatfirma, sem eru réttargæslulögmenn Skaugum-konunnar og Noru Haukland, að þær hafi vonast til þess að dómur í héraði myndi binda enda á málið. „Við höfðum vonast til þess að ítarlegur dómur héraðsdóms myndi binda endanlegan endi á málin sem varða Skaugum-konuna og Noru Haukland. Málið hefur verið veruleg byrði fyrir alla skjólstæðinga okkar,“ segja þau í yfirlýsingu við NRK. Prinsessusonurinn, sem er 29 ára gamall, neitaði sök í alvarlegustu ákæruliðunum, þær sem vörðuðu nauðganir og ofbeldi gegn fyrrverandi kærustu hans. Verjendur hans fóru fram á að hann fengi ekki þyngri dóm en átján mánaða fangelsi. Mikið hefur gengið á í norsku konungsfjölskyldunni að undanförnu. Upplýst var um náið samband Mette-Marit, eiginkonu Hákons krónprins, og móður Høiby við Jeffrey Epstein, bandaríska auðkýfinginn og kynferðisbrotamanninn, í skjölum sem kennd eru við Epstein í vetur. Þá hefur Mette-Marit þjáðst af alvarlegum lungnasjúkdóma og er nú sögð á biðlista eftir lungnaígræðslu.
Noregur Kóngafólk Mál Mariusar Borg Høiby Erlend sakamál Tengdar fréttir Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun. 6. júní 2026 15:40 Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga. 6. júní 2026 13:00 Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Hákon, krónprins Noregs, snýr fyrr heim úr opinberri ferð sinni til Japans vegna veikinda Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir hjónanna gerir einnig hlé á námi sínu í Ástralíu til að verja tíma með móður sinni. 1. júní 2026 15:07 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira
Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Marius Borg Høiby, sonur Mette-Marit krónprinsessu Noregs, hefur hvorki fengið að heimsækja móður sína né vera viðstaddur mikilvæga læknisfundi er varða heilsufar hennar. Þetta gagnrýna verjendur hans en hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan beðið er þess að dómur verði kveðinn upp í máli hans. Móðir hans veiktist alvarlega í vikunni en hún þjáist af lungnatrefjun. 6. júní 2026 15:40
Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Heilsu krónprinsessu Noregs hefur hrakað verulega undanfarna mánuði vegna lungnasjúkdóms og í gær var greint frá því að hún væri á biðlista fyrir ígrætt lunga. Lungnalæknir segir þó ekki hlaupið að því að fá grætt í sig lunga. 6. júní 2026 13:00
Styttir ferðina vegna veikinda krónprinsessunnar Hákon, krónprins Noregs, snýr fyrr heim úr opinberri ferð sinni til Japans vegna veikinda Mette-Marit krónprinsessu. Dóttir hjónanna gerir einnig hlé á námi sínu í Ástralíu til að verja tíma með móður sinni. 1. júní 2026 15:07