Fólk komi rautt í framan eins og humar Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 15. júní 2026 23:26 Elínborg Kristjánsdóttir segir að margir hafi vanmetið íslensku sólina um helgina. sýn Margir mættu eflaust rauðir í framan í vinnuna í morgun eftir góða veðrið um helgina. Lyfsali hjá Lyfju segir að fólk hafi komið unnvörpum í apótekið í leit að sólarvörn eða kælikremi vegna sólbruna. Margir hafi vanmetið íslensku sólina.
Það vakti athygli fréttamanns hvað viðmælendur Bítisins á Bylgjunni í morgun voru sólkysstir og útiteknir eftir helgina. Sólin skein nánast viðstöðulaust alla helgina með tilheyrandi útiveru flestra landsmanna. Fáir fóru varhluta af góða veðrinu og er starfsfólk Lyfju þar engin undantekning. Funduð þið fyrir góða veðrinu? „Já svo sannarlega. Hingað kom fólk í stríðum straumi að kaupa sólarvörn og eins og sjá má á hillunum þá vantar aðeins í þær. En fólk kom oft fullseint, hafði gleymt að bera á sig vörn og var rautt eftir daginn. Það var að koma og fræðast um hvað það gæti gert til að hjálpa,“ segir Elínborg Kristjánsdóttir, lyfsali í Lyfju. Fólk þurfi að kanna UV geisla Þá hafi margir verið í leit að kæligeli vegna sólbruna. Elínborg segir mikilvægt að fólk fylgist með UV geislum en starfsfólk Lyfju hefur undanfarið lagt áherslu á fræðslu um geislana sem finna má á heimasíðu Lyfju og hjá Geislavörnum ríkisins. „Ef UV geislar eru komnir yfir þrjá þá þarf maður að bera á sig sólarvörn því það geta orðið skemmdir í húðinni.“ Og mælir Elínborg með vörn sem inniheldur SPF stuðul 50 eða hærri. „Og passa að bera nóg á sig. Það er talað um að klæða sig í sólarvörnina eins og við klæðum okkur í föt, þannig bera hvítt og fínt lag á sem fer svo inn í húðina.“ Græn svæði Reykjavíkur voru vel nýtt um helgina.vísir/vilhelm Vörn komi ekki í veg fyrir sólbrúna húð Hún segir fólk verða sífellt meðvitaðra um skaðsemi sólar „Og er einmitt forvitið um hvað UV þýði og hvað það eigi að nota. Fólk er enn pínu hrætt við að nota 50 vörn, heldur að það verði ekki brúnt heldur náfölt í sólinni en það er ekki rétt. Við fáum þennan brúna lit samt en erum bara að vernda húðina fyrir skaðlegu geislunum.“ Margir rauðir eins og humrar Margir hafi verið eldrauðir í framan við komuna í apótekið um helgina. „Alveg einn og einn alveg mjög rauður, mætti líkja við humar. En margir aðeins rauðir. Fólk var líka að tala um að það hafi stórlega vanmetið íslensku sólina eins og við gerum svo oft.“ Sólin lét sjá sig um svipað leyti og sumarfrí barna hófst.vísir/vilhelm
Veður Sólin Verslun Tengdar fréttir Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Veðrið hefur sannarlega leikið við landmenn síðustu daga. Miðbærinn hefur verið þétt setinn og margir sjást þar með drykk við hönd. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir slíkt blíðskaparveður hafa áhrif á alla drykkjarsölu fyrirtækisins. 13. júní 2026 16:35 Sólin sleikir landsmenn Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. 13. júní 2026 09:57 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Sjá meira
Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Veðrið hefur sannarlega leikið við landmenn síðustu daga. Miðbærinn hefur verið þétt setinn og margir sjást þar með drykk við hönd. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir slíkt blíðskaparveður hafa áhrif á alla drykkjarsölu fyrirtækisins. 13. júní 2026 16:35
Sólin sleikir landsmenn Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. 13. júní 2026 09:57