Innlent

Bíll við bíl að Þing­völlum og um­ferð hreyfist hægt

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa
Svona er bílaröðin á Þingvallaleiðinni, myndin var tekin á þriðja tímanum í dag.
Svona er bílaröðin á Þingvallaleiðinni, myndin var tekin á þriðja tímanum í dag. Vísir/Ingibjörg

Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt.

Fréttastofa sló á þráðinn til að taka stöðu á umferðinni vegna tónlistarhátíðarinnar Bergmáls sem fram fer á Þingvöllum. Pétur segir umferð þó ganga þokkalega þrátt fyrir að margir bílar væru á ferðinni. Engin óhöpp hafi orðið í umferðinni þegar þessi frétt er skrifuð. Tuttugu þúsund manns munu bera hljómsveitina augum á Þingvöllum í kvöld. 

Hljómsveitin Kaleo spilar nú á sviðinu steinsnar frá Almannagjá. Hlusta má á tónleikana í beinni á Bylgjunni. Fréttamaður Sýnar er meðal þeirra sem nú eru í bílaröð. Bílaröðin hreyfist hægt og er umferðarteppa frá því fyrir Grafningsafleggjara. Þá er net og símasamband lítið í bílaröðinni samkvæmt fréttamanni.

Á annað þúsund starfsmanna vinna að tónleikunum og hefur búnaður og hljóðfæri verið fluttur í tonnatali á svæðið. Jakob Frímann skipuleggjandi hvatti í morgun fólk til að leggja af stað sem fyrst til að forða sér undan umferðarþunga. Hann minnti á að rútur fari frá Klettagörðum 27 á hálftíma fresti og lagði sú fyrsta af stað klukkan tíu í morgun.

„Og eru á hálftíma fresti út daginn. Svo er hægt að taka rútu aftur til baka ef menn eru orðnir saddir tóndaga,“ sagði Jakob Frímann við fréttastofu í morgun. 

Fréttastofa fékk ábendingu frá farþega um borð í rútu á leið til Þingvalla á þriðja tímanum. Sá sagðist sitja fastur í umferð. Góð loftkæling sé þó í rútunni og allir kátir. „Skömmu áður en maður kemur í Vinaskóg er algjör teppa alla leið að Þingvöllum,“ sagði farþeginn.

Lýður Valberg tökumaður okkar og ljósmyndari er eins og svo margir aðrir fastur í bílaröð. Hann nýtti tækifærið til að smella af.Vísir/Lýður Valberg

Bílaröðin er ansi löng.Vísir/Ingibjörg
„Ef myndin er skoðuð vel sést að við erum sirka fimm kílómetra frá staðnum og þokumst lítið,“ skrifar lesandi Vísis sem sendi okkur þessa mynd.
Bílaröðin nær nokkuð langt.

Sumir farþegar virðast hafa ákveðið að skella sér út á meðan beðið er og njóta þannig veðurblíðunnar.

Svona er útsýnið hjá einum lesanda Vísis.


Áttu mynd af bílaröðinni? Þú getur sent okkur myndir hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×