„Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Agnar Már Másson skrifar 21. júní 2026 09:13 Margmenni var á Þingvöllum í gær. Vísir/Viktor Freyr „Þetta gekk í rauninni allt saman mjög vel í öllum aðalatriðum,“ segir Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, um tónlistarhátíðina Bergmál á Þingvöllum sem haldin var í gær. Miklar umferðartafir urðu engu að síður í kringum hátíðina, en við því var að búast að sögn lögreglu. „
Umferðin frá gekk greiðlega — gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf, en það var hreyfing alltaf,“ bætir lögregluþjónninn við í samtali við Vísi. Við upphaf tónleikanna myndaðist löng bílaröð frá Grafningsafleggjara að Þingvöllum og gekk umferðin fremur hægt fyrir sig en lögreglan segir við því að búast þegar tuttugu þúsund manns leggja leið sína að Þingvöllum öll á sama tíma. Sumir farþegar virðast hafa ákveðið að skella sér út á meðan beðið er og njóta þannig veðurblíðunnar. Að hátíðinni lokinni myndaðist sömuleiðis nokkurt umferðaröngþveiti á bílastæðinu og var sömuleiðis lítil hreyfing af svæðinu. Á myndskeiði sem tekið var um klukkan eitt frá bílastæðinu að Brúsastöðum mátti sjá fjölda ökumanna eiga í erfiðum með að koma sér út vegna umferðarstíflu. „Það var í rauninni bara eins og við var að búast þegar margir vilja fara á sama tíma. Það bara gengur ekki. Og við vissum að það yrðu einhverjar tafir,“ segir Einar. En miðað við fjölda gesta og fjölda ökutækja er lögreglan almennt ánægð með hvernig greiddist úr þeirri umferð. Spurður hvort lögreglan hafi þurft að sinna einhverjum fleiri málum sem komu upp, svo sem slagsmálum, segir hann að vitaskuld hafi nokkur slík mál komið upp en að engin þeirra séu í frásögur færandi. „Það voru í rauninni engin mál sem komu upp sem tekur því að tala um. Það voru auðvitað afskipti eins og eðlilegt er í tuttugu þúsund manna hópi, en bara svona minniháttar í sjálfu sér.“ Einar segir að hátt í hundrað lögreglumenn hafi komið að verkefninu, þar á meðal í gæslu á svæðinu, í gæslu á bílastæðunum og við umferðarstýringu inn og út af svæðinu. „Það er svona upp úr miðnætti sem umferðin toppar, þá var hún hvað þéttust. Svo var hún í rauninni jöfn og þétt fram á þriðja tímann þegar í rauninni síðustu bílar voru að fara.“
Þingvellir Tónleikar á Íslandi Kaleo Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Bláskógabyggð Lögreglumál Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira