Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Freyja Þórisdóttir skrifar 22. júní 2026 20:10 „Það hefur vart farið fram hjá neinum að tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi,“ á þessum orðum hefst færslan. Facebook/Lögreglan á Suðurlandi Tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi en undirbúningur hátíðarinnar hefur verið mikið ræddur síðastliðnar vikur. Tekist hefur verið á um hvort að skipulag hafi verið með sem bestum hætti en meðal þeirra sem telja svo vera er starfshópur Lögreglunnar á Suðurlandi. „
Það hefur vart farið fram hjá neinum að tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi,“ svona hefst færsla sem birt var á Facebook-síðu Lögreglunnar á Suðurlandi en þar segir jafnframt að „það að skipuleggja og halda fjölmennan viðburð á jafn einstökum stað og í þjóðgarðinum á Þingvöllum sé umfangsmikið verkefni sem krefst vandaðs undirbúnings, öflugrar samhæfingar og náins samstarfs fjölmargra aðila“. Fjöldi fólks eigi þakkir skilið En í færslunni segir einnig að Lögreglan á Suðurlandi vilji færa öllum þeim sem komu að undirbúningi, framkvæmd og öryggisgæslu hátíðarinnar sérstakar þakkir fyrir framúrskarandi samstarf, fagmennsku og framlag sitt til þess að tryggja örugga og farsæla framkvæmd viðburðarins. „Sérstakar þakkir fái starfsfólk og fulltrúar frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunni á Vesturlandi, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra, sérsveit ríkislögreglustjóra, Neyðarlínunni, Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, björgunarsveitunum, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðinni, Sýslumanninum á Suðurlandi og umsagnaraðilum, Þjóðgarðinum á Þingvöllum og Þingvallanefnd, auk starfsfólks og skipuleggjenda hátíðarinnar.“ Einnig vilji þau þakka gestum hátíðarinnar fyrir góða samvinnu, tillitssemi og jákvætt viðmót sem átti stóran þátt í að skapa góða stemningu og stuðla að öryggi allra viðstaddra. Að lokum fái veðurguðirnir einnig sitt hrós fyrir að leggja sitt af mörkum til vel heppnaðrar helgar. Þá er því bætt við að árangur verkefnis af þessari stærðargráðu byggist á því að margir aðilar vinni að sameiginlegu markmiði. Bergmál sé gott dæmi um hvernig samvinna, fagmennska og góður undirbúningur geta skilað öruggum og vel heppnuðum viðburði á einum merkasta stað landsins. „Lögreglan á Suðurlandi þakkar öllum sem komu að verkefninu fyrir þeirra framlag.“
Lögreglumál Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Kaleo Þingvellir Facebook Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira