„Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 23. júní 2026 20:02 Svana Lovísa er viðmælandi í Litlu hlutunum. Kári Sverris „Þetta kenndi mér að sjá hlutina betur og forgangsraða og undirbjó mig fyrir það sem koma skal, því fyrir tveimur árum síðan greinist dóttur mín með sjúkdóm sem umbreytir svolítið lífinu,“ segir vöruhönnuðurinn litaglaði Svana Lovísa sem er sömuleiðis eigandi Studio Flamingo.
Svana Lovísa er viðmælandi Kára Sverris í nýjasta þætti af Litlu hlutunum sem má sjá í spilaranum hér fyrir neðan: Umkringd skapandi konum Svana Lovísa hélt lengi vel upp vinsælu bloggi og hefur alla tíð verið listræn. Hún ólst upp á skapandi heimili og mótaðist af listrænum konum úr fjölskyldunni sem voru alltaf að hanna og skapa. „Ég er alin upp í fallegu umhverfi. Mamma og amma gerðu allt sjálfar eins og að sauma föt, yfirdekkja sófa og fleira.“ Hún segir þær ekki hafa eytt miklum peningum í fegurðina heldur sjálfar komið með sniðugar lausnir og kennt henni að finna fegurðina í litlu hlutunum. View this post on Instagram A post shared by Svana Lovísa Kristjánsdóttir (@svana.svartahvitu) Keyrði sig í kaf Það hefur margt gengið á sjá Svönu Lovísu undanfarin ár. Hún fór í kulnun og náði að byggja sig upp með aðstoð Virk. „Ég er búin að vera að finna mína vegferð í dálítið langan tíma og þetta er allt að koma. Lífið hefur svo sannarlega kennt mér að hægja á mér. Ég keyrði mig algjörlega í kaf fyrir nokkrum árum.“ Svana Lovísa segist alltaf hafa haft hundrað bolta á lofti og vanist því að hafa brjálað að gera þangað til hún gat ekki meira. „Þetta átti allt að gerast og ég er ótrúlega þakklát fyrir það í dag. Þetta kenndi mér að sjá hlutina betur og forgangsraða og undirbjó mig fyrir það sem koma skal því fyrir tveimur árum síðan greinist dóttur mín með sykursýki týpu 1 sjúkdóm sem umbreytir svolítið lífinu. Ég var búin að kúpla mig út úr þessari brjáluðu hringiðu af streitu og var komin á svo góðan stað þannig þegar þetta kemur þá fer ég ekki á kaf. Ég næ að halda öllum boltum á lofti sem var ofboðslega mikilvægt fyrir fjölskylduna.“ Neikvæðnin ókunnug tilfinning Hún segir að þetta tímabil hafi kennt henni hvað mest og þarna áttaði sig hún sömuleiðis á því hvað það skiptir miklu máli að finna gleði í hversdagsleika og starfi. „Maður heldur að hlutirnir verði alltaf nákvæmlega eins og maður vill þegar maður vill. Það er bara aldeilis ekki svoleiðis og maður þarf að gera hlutina sjálfur til að láta sína eigin drauma rætast. Það er enginn að fara að gera það nema þú. Ég var alltaf að bíða eftir rétta mómentinu en þarna fann ég svo sterkt að ég þurfti meiri gleði. Þetta var að draga mig niður, mér fannst hlutirnir bara vera erfiðir og neikvæðir og mér fannst ég allt í einu orðin neikvæð. Það er tilfinning sem ég kannast ekki við.“ View this post on Instagram A post shared by Svana Lovísa Kristjánsdóttir (@svana.svartahvitu) Svana Lovísa fór því í mikla sjálfsskoðun og opnaði í kjölfarið Studio Flamingo í Hafnarfirði. Hún er sömuleiðis gríðarlega vinsæl fyrir einstakar blómaskreytingar á viðburðum og hefur fyrirtæki hennar farið á flug. „Nú er ég markvisst að vinna að gleðinni alla daga, ég fann sjálfa mig aftur og er á mjög góðum stað.“
Litlu hlutirnir Menning Tíska og hönnun Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Ástfangin pör á Djöflum Menning Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira