Þrjú alvarleg ofbeldisbrot Bjarki Sigurðsson skrifar 23. júní 2026 10:46 Guðjón Rúnar Sveinsson er aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri. Erilsamri viku er nú lokið á Akureyri en þar höfðu síðustu daga farið fram Bíladagar, útskriftir úr mennta- og háskóla með tilheyrandi veisluhaldi, mótorhjólahittingur og fleira. Aðalvarðstjóri segir þrjú alvarleg ofbeldisbrot hafa verið tilkynnt til lögreglu.
Sumrin á Akureyri eru ávallt blómleg enda nóg um að vera þar flestar helgar. Ein stærsta helgi ársins þar er þriðja helgin í júní þegar töluverður fjöldi fólks leggur leið sína í bæinn á Bíladaga og útskriftarveislur eru um allar trissur. Þessu fylgir mikið partýstand ár hvert. Bíladagar voru glæsilegir í ár og fengu skipuleggjendur hrós frá lögreglu.Vísir/Viktor Freyr Guðjón Rúnar Sveinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri, segir að þrátt fyrir eril hafi allt gengið nokkuð smurt fyrir sig. „Þetta gekk vonum framar. Það var mikill erill, mikið að gera hjá lögreglu. Mikið um hraðakstur og umferðarlagabrot en annars gekk þetta bara mjög vel,“ segir Guðjón. Nokkrir gistu í fangageymslu lögreglu, flestir vegna ölvunar, en einhverjir í tengslum við líkamsárásir. „Það voru átta ofbeldisbrot hjá okkur, þar af þrjú sem voru talin alvarleg. Hin voru minniháttar,“ segir Guðjón. Hverjir hegða sér betur, utanbæjarmenn eða Akureyringar? „Verandi utanbæjarmaður verð ég að segja Akureyringar, það er svoleiðis,“ segir Guðjón kankvís.
Akureyri Næturlíf Bílar Lögreglumál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira