Vilja að konur uppfylli sinn æðsta tilgang: að verða mæður Sigurgeir Þorkelsson skrifar 23. júní 2026 22:38 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, Mateusz Morawiecki, fyrrverandi forsætisráðherra Póllands fyrir hönd Laga og reglu, og Georgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu fyrir hönd Bræðra Ítalíu. Samsett Miðflokkurinn er orðinn fullgildur meðlimur Samtaka evrópskra íhaldsmanna og umbótasinna (European Conservatives and Reformists Group, eða ECR). Á síðu ECR er fullyrt að kristnir sæti mestum ofsóknum allra trúarhópa og að vegna lækkandi fæðingartíðni fái konur ekki að uppfylla sinn æðsta tilgang: að verða móðir.
Flokkar ECR sem eiga fulltrúa á Evrópuþinginu mynda saman þingflokk og fá fyrir vikið styrki frá ESB. Þingflokkur ECR er sá fjórði stærsti á Evrópuþinginu með 81 af 720 þingmönnum. Tveir stærstu flokkar flokkahópsins á Evrópuþinginu eru Bræður Ítalíu, flokkur Georgiu Meloni forsætisráðherra, og hinn pólski Lög og regla. Kennir ýmissa grasa í útgefnu efni ECR Facebook-síða ECR-þingflokksins er uppfærð í það minnsta daglega. Þegar þetta er skrifað er nýjasta færslan myndband þar sem þingmenn fullyrða að enginn trúarhópur sitji undir sömu ofsóknum og kristnir geri í dag. „Það eru allir að tala um íslamófóbíu eða hinseginfóbíu en við viljum ræða kristnifóbíu (e. Christianophobia),“ segir maður í upphafi myndbandsins. „Það er sorgleg staða að kristnir séu sá trúarhópur sem sætir mestum ofsóknum,“ segir annar. Þingflokkurinn segist hafa farið fram á það við framkvæmdastjórn ESB að stofnað verði embætti sem samhæfir aðgerðir gegn kristnifóbíu í álfunni. Svíþjóðardemókratarnir eru þegar hluti ECR. Getty Í gær birtist síðan myndband þar sem þingmaður gagnrýnir frelsun kvenna sem þykir hafa leitt til lægri fæðingartíðni. Þá hafi Evrópusambandið verið leiðandi í hugarfarsbreytingu um móðurhlutverkið, sem sé nú orðið jaðarsett í Evrópu. Konur fái þannig ekki að uppgötva sinn æðsta tilgang: að verða móðir. Evrópusambandið ætti að vera með „metnaðarfulla stefnu þegar kemur að fæðingum“ samkvæmt þingmanninum. Miðflokkur einnig áhyggjufullur vegna lægri fæðingartíðni Varaformanni Miðflokksins, Snorra Mássyni, hefur verið tíðrætt um lækkandi fæðingartíðni hér á landi. Orðræða Snorra hefur langt því frá verið óumdeild. Viðbrögð hans við gagnrýninni má sjá hér: Þá tók fyrrum þingmaður Miðflokksins, Birgir Þórarinsson, oft til varna fyrir kristna trú á Alþingi og lagði meðal annars fram að kristnifræðikennsla skyldi tekin upp á nýjan leik. Hinn pólski Lög og réttlæti stór innan ECR Forseti framkvæmdastjórnar ECR er Mateusz Morawiecki sem tilheyrir flokki Laga og réttlætis í Póllandi og var forsætisráðherra landsins árin 2017 til 2023. Í tíð flokksins í ríkisstjórn fjarlægðist Pólland ESB, meðal annar vegna breytinga á dómskerfi landsins sem þóttu draga úr sjálfstæði dómstóla og ganga þar með gegn gildum réttarríkisins. Þá vakti stefna flokksins gegn þungunarrofi og réttindum hinsegin fólks litla kátínu hérlendis, sem meðal annars má sjá á mótmælum sem fram fóru. Miðflokkurinn telst samstarfsflokkur á alþjóðavísu þar sem Ísland er ekki aðildarríki ESB. Flokkurinn var í gær boðinn velkominn í samtökin ásamt tveimur öðrum flokkum á Norðurlöndum, Sönnum Finnum og Danmerkurdemókrötum, sem báðir hafa lagt málefni innflytjenda og varðveislu þjóðmenningar á oddinn.ECR Miðflokkurinn dýpkar Evrópusamvinnuna Talsmaður þingflokks ECR í utanríkismálum, Adam Bielan, hefur lýst yfir stuðningi við aðild Íslands að ESB. Það var Ríkisútvarpið sem greindi frá í mars síðastliðnum. Miðflokkurinn fetar með þessu í spor Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks sem þegar hafa bundist böndum með Evrópuflokkum sem fylgja hugmyndafræði þeirra. Viðreisn með frjálslyndum, Samfylking með jafnaðarmönnum og Sjálfstæðisflokkur með Evrópska Þjóðarflokknum (EPP), samstarfi miðhægriflokka. ECR er á móti frekari Evrópusamruna og skrifræði og leggur áherslu á einstaklingsfrelsi og hagsæld þjóðríkja. Í síðustu Evrópuþingskosningum árið 2024 barðist flokkahópurinn hart gegn umhverfisstefnu sambandsins og fyrir sterkari ytri landamærum ESB. Aðildarflokkar ECR teljast margir fjarhægri- eða harðlínuhægriflokkar og hefur orðræða þeirra oft verið skilgreind sem popúlísk. Það var Heimildin sem greindi fyrst frá aðild Miðflokksins að ECR. Heimildin greinir einnig frá því að illa hafi gengið að fá svör frá forsvarsmönnum flokksins um málið allt frá því að fréttir bárust af því að sótt hefði verið um aðild.
Miðflokkurinn Pólland Kosningar á Ítalíu Kosningar í Póllandi Dómstólar Evrópusambandið Tengdar fréttir Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs. 12. júní 2026 14:48 Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar. 1. júní 2026 10:07 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Fleiri fréttir Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Sjá meira
Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Ungir miðflokksmenn hafa ekki birt neina stjórnmálaályktun eftir fyrsta landsþing í sögu hreyfingarinnar þótt hátt í tveir mánuðir séu liðnir frá því. Aðrar ungliðahreyfingar hafa birt sínar ályktanir örfáum dögum eftir þeirra landsþing eða jafnvel samdægurs. 12. júní 2026 14:48
Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar. 1. júní 2026 10:07