Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Freyja Þórisdóttir og Kristján Már Unnarsson skrifa 23. júní 2026 23:33 Íbúar Suðursveitar fagna fjölnota íþróttavelli en hver veit nema nýtt Íslandsmet verði slegið á vellinum um helgina? Sýn/Egill Aðalsteinsson Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli.
Kristján Már Unnarsson fréttamaður Sýnar greindi frá málinu í kvöldfréttum en hann nefnir það meðal annars að kennslu hafi lokið í Hrollaugsstaðaskóla fyrir tuttugu árum eða svo. Ekki nema um fimmtán heimili í sveitinni „Ég er hér í ægifagurri umgjörð Hrollaugsstaðaskóla með Kálfafellstind hér fyrir ofan. Hér lauk kennslu fyrir tuttugu árum eða svo og það verður að hafa í huga að þetta er mjög fámenn sveit. Hér eru bara um fjórtán til fimmtán heimili þar sem er búið og því vekur mikla athygli þessi fjölnotaíþróttavöllur sem er kominn,“ segir Kristján en á vellinum eru meðal annars hlaupabraut, grindur fyrir grindahlaup, stökkgryfjur, og súlur og dýnur fyrir stangarstökk. Þá er svo sannarlega ekki allt upptalið enn því að á vellinum er búið að koma fyrir eins konar búri svo hægt sé að æfa þar sleggjukast og kringlukast en þar er jafnframt bæði körfuboltavöllur og fótboltavöllur. Öllu verði tjaldað til Formaður Ungmennafélagsins Vísis í Suðursveit, sem var stofnað árið 1912, er Bjarni Malmquist Jónsson. Hann segir frá því að vígja eigi völlinn um helgina með alþjóðlegu frjálsíþróttamóti. „Hér verður öllu tjaldað til og forseti ÍSÍ ætlar meðal annars að mæta og heiðra samkomuna,“ segir hann en bætir við að á vellinum verði gerð atlaga að Íslandsmeti kvenna í kringlukasti. Íslandsmethafinn sjálfur muni mæta þannig að líkurnar séu þokkalegar. Hann segir að á vellinum sé notast við sömu efni og finna má á Ólympíuleikvöngum. „Þetta er bara það flottasta sem þú finnur í sportinu. Þetta er það sama og er notað á alþjóðlegum völlum, Ólympíuleikvöngum og slíkum völlum, þannig að það er ekkert til sparað, öllu er til tjaldað,“ segir hann. Hvaða samfélagslegu áhrif hefur svona völlur? „Þetta bara hefur hellings þýðingu að hérna þjappa fólki svona saman. Að sameina sveitina aftur,“ segir Bjarni og útskýrir að þegar skólinn hafi liðið undir lok hafi vantað hvatningu til að hrista fólkið í sveitinni saman.
Íþróttir barna Frjálsar íþróttir Tímamót Sveitarfélagið Hornafjörður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira