Samstarf

Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hag­nýt ráð frá múrara­meistara

BM Vallá
„Fasteignin er yfirleitt stærsta fjárfesting fólks og það borgar sig að hugsa vel um hana. Með reglulegu viðhaldi er hægt að koma í veg fyrir að litlir gallar þróist yfir í stór og dýr vandamál,“ segir Hafsteinn Guðmundsson, múrarameistari og tækniráðgjafi hjá BM Vallá.
„Fasteignin er yfirleitt stærsta fjárfesting fólks og það borgar sig að hugsa vel um hana. Með reglulegu viðhaldi er hægt að koma í veg fyrir að litlir gallar þróist yfir í stór og dýr vandamál,“ segir Hafsteinn Guðmundsson, múrarameistari og tækniráðgjafi hjá BM Vallá.

Fáar eignir skipta fólk meira máli en heimilið. Samt er auðvelt að fresta viðhaldi þar til litlar skemmdir eru orðnar að kostnaðarsömum framkvæmdum. Það er einmitt kjarninn í herferð BM Vallár, „Gerðu vel við þína fasteign“, sem hvetur húseigendur til að bregðast við í tíma og nýta sér faglega ráðgjöf áður en hafist er handa.

„Við líkjum þessu stundum við að hugsa vel um líkamann sinn eða bóna bílinn sinn,“ segir Hafsteinn Guðmundsson, múrarameistari og tækniráðgjafi hjá BM Vallá, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í yfir áratug. „Fasteignin er yfirleitt stærsta fjárfesting fólks og það borgar sig að hugsa vel um hana. Með reglulegu viðhaldi er hægt að koma í veg fyrir að litlir gallar þróist yfir í stór og dýr vandamál.“

Sumarið er tíminn til framkvæmda

Þótt íslenska sumarið sé stutt er það langbesti tíminn til að sinna utanhússviðhaldi. Hafsteinn segir þó mikilvægt að skipuleggja verkin vel enda gefi veðrið ekki alltaf mikið svigrúm. „Við búum við allt aðrar aðstæður en margar nágrannaþjóðir. Sumarið er stutt og oft rigning, þannig að það þarf að undirbúa framkvæmdir vel og velja rétta tímann.“

Hann segir gott ráð að gera árlegt ástandsmat á húsinu þegar vorar. „Það er mjög einfalt að ganga einn hring í kringum húsið og skoða hvort sprungur séu farnar að myndast, málning farin að bólgna upp, gluggar að láta á sjá eða rennur að losna. Þessi litla yfirferð getur komið í veg fyrir miklar skemmdir síðar.“

Myndir geta sagt meira en margt annað

Margir halda að þeir þurfi að fá iðnaðarmann heim áður en hægt sé að meta ástand hússins. Hafsteinn segir það alls ekki nauðsynlegt í öllum tilfellum. „Mjög oft duga einfaldlega góðar myndir. Fólk getur komið til okkar með myndir af sprungum, tröppum, steyptum veggjum eða öðru sem það hefur áhyggjur af og þá förum við yfir málið saman.“

Í sumum verkefnum sé þó rétt að skoða aðstæður á staðnum. „Ef þess þarf komum við á staðinn og metum ástandið. En í mörgum tilfellum getum við strax leiðbeint fólki um næstu skref, hvaða efni henta og hvernig best er að undirbúa verkið.“

Að sögn Hafsteins er ráðgjöfin ekki síður mikilvæg en efnin sjálf. „Við hjálpum fólki að velja réttu vörurnar, útskýrum hvernig undirlagið á að vera, við hvaða aðstæður á að vinna og hvenær má mála yfir eða bera á varnarefni. Góður undirbúningur skiptir í raun öllu máli.“

Það margborgar sig að bíða ekki of lengi með viðhald því litlar sprungur geta stækkað á skömmum tíma.

Smá sprunga í dag getur orðið stór viðgerð á morgun

Það er freistandi að bíða eitt sumar í viðbót þegar aðeins sést lítil sprunga eða örlítil flögnun á málningu. Hafsteinn varar við þeirri hugsun. „Það sem lítur út fyrir að vera smávægilegt getur stækkað mjög hratt. Þegar málning eða yfirborðsvörn fer að gefa sig getur vatn komist inn í steypuna og þá aukast skemmdirnar fljótt.“

Þess vegna sé hagkvæmast að grípa inn í sem fyrst. „Því fyrr sem fólk bregst við, þeim mun minni verður bæði kostnaðurinn og vinnan. Til lengri tíma litið er reglulegt viðhald alltaf ódýrari leið en að bíða eftir stórum viðgerðum.“

Rétt efni skipta öllu máli

Eitt af því sem Hafsteinn sér oft í starfi sínu er að fólk velur efni sem henta ekki þeim flötum sem verið er að gera við. „Við sjáum til dæmis reglulega að veggjaefni eru notuð á tröppur eða stéttar. Það virðist kannski virka fyrst en endingin verður allt önnur en þegar rétt efni eru notuð.“

Það á sérstaklega við um svokallaða kalda fleti, eins og tröppur, stéttar og garðveggi. „Þessir fletir verða fyrir miklu meira álagi en venjulegir veggir. Þeir eru saltaðir á veturna, mokaðir og klaki sleginn af þeim. Þess vegna þarf að velja efni sem þola bæði högg, slit og sölt.“

Hann segir marga freistast til að velja ódýrustu lausnina. „Fólk fær stundum ráð frá nágranna eða ættingja og kaupir ódýrustu efnin. En ef efnin eru röng þarf oft að gera verkið aftur miklu fyrr. Betri efni kosta kannski aðeins meira í upphafi en endast yfirleitt margfalt lengur.“

„Við eigum fjölbreytt úrval af varnarefnum sem má nota á steypta fleti til að verja þá fyrir vatni og veðri og lengja þannig líftíma steypunnar,“ segir Hafsteinn. Hér má sjá muninn á blómakeri með og án varnarefna.

Stundum borgar sig að hugsa stærra

Ekki eru öll viðhaldsverkefni kláruð á einu sumri og það þarf ekki heldur að vera markmiðið. „Margir taka eina hlið hússins í einu og dreifa verkefninu jafnvel yfir nokkur ár. Það getur verið mjög skynsamlegt.“

En Hafsteinn bendir á að mikilvægt sé að horfa á húsið í heild. „Stundum er ekki skynsamlegt að klára eina hlið alveg ef aðrar hliðar eru líka farnar að láta á sjá. Þá getur verið betra að gera fyrst við sprungur alls staðar þannig að vatn komist ekki inn og valdi frekari skemmdum.“

Þess vegna geti góð ráðgjöf sparað bæði tíma og fjármuni. „Við reynum alltaf að hjálpa fólki að forgangsraða verkefnunum þannig að fjármunirnir nýtist sem best.“

Fyrir og eftir: Fasteign sem fékk umfangsmikla múrviðgerð.

Ekki bíða of lengi

Aðspurður um eitt ráð sem allir húseigendur ættu að hafa í huga þarf Hafsteinn ekki að hugsa sig lengi um. „Ekki bíða of lengi. Litlar skemmdir eru yfirleitt einfaldar og ódýrar í lagfæringu en ef þær fá að þróast verða verkefnin bæði stærri og dýrari. Smá fyrirhyggja og góð ráðgjöf geta því skipt gríðarlega miklu máli.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×