„Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2026 07:32 Dustin Poirier var magnaður bardagamaður en honum hefur gengið illa að vinna úr því að vera hættur að berjast. Getty/ Jonathan Bachman UFC-goðsögnin Dustin Poirier var handtekinn á sunnudag í Georgíu, grunaður um ölvun á almannafæri. Hann ætlaði þá í slag við starfsmann flugvallarins.
Hinn 37 ára gamli Poirier var handtekinn og látinn laus gegn tryggingu, samkvæmt dómsskjölum í Clayton-sýslu. Myndband af atvikinu, sem lögreglan í Atlanta lét TMZ í té, sýndi Poirier ögra starfsmanni flugvallarins eftir að hann var fjarlægður úr flugvél og segja: „Ég skal berjast við þig hér og nú,“ sagði Poirier og leit út eins og hann væri kominn í búrið. Starfsmaðurinn kallaði að sjálfsögðu á liðsauka. Seinna í myndbandinu hótaði starfsmaðurinn að nota rafbyssu á Poirier. Hann var að lokum handjárnaður án líkamlegra átaka. 🚨 Dustin Poirier was unhinged during his arrest this week in a totally chaotic scene🎥: Atlanta Police Department pic.twitter.com/DKCBQBLR81— TMZ Sports (@TMZ_Sports) June 23, 2026 „Ég elska ykkur öll. Ég er að vinna í sjálfum mér,“ skrifaði Poirier á Instagram á mánudag. Á þriðjudag birti Poirier færslu á Instagram þar sem hann sagðist þurfa „hjálp“. „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp, það hefur ekki verið mér auðvelt að hætta að berjast og áfengi er ekki svarið,“ skrifaði hann. „Það hefur eyðilagt líf föður míns og ég mun ekki leyfa því að eyðileggja mitt, fjölskylda mín á mig skilið 100%. Ég reyni að gera allt sem ég get til að koma huganum í lag og taka réttu næstu skrefin,“ skrifaði Poirier. Poirier og eiginkona hans, Jolie, eiga dóttur og ungbarn að aldri. Poirier, sem hætti í MMA í júlí síðastliðnum og greindi síðar frá því að hann væri á leið til að verða edrú, sagði í færslu í nóvember: „Hef verið í sjálfsskoðun, ég er að gera nokkrar breytingar. Blessun á ferðalaginu,“ skrifaði Poirier Poirier, sem er frá Lafayette í Louisiana, var einn ástsælasti bardagamaður í MMA á síðasta áratug og tók þátt í eftirminnilegum bardögum gegn meðal annars Conor McGregor, Max Holloway, Justin Gaethje, Charles Oliveira og Khabib Nurmagomedov. Dustin Poirier’s statement is remarkable.Not because of what’s in it, but because of what’s missing.No apology to the women he abused.No apology to the officer he threatened knowing full well he could kill him with his hands and he was scared.Just another public statement… pic.twitter.com/PsmjenOvgf— Pat (@KhunPat27) June 24, 2026
MMA Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Reese rífur í sig metin Körfubolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Íslensk lið í Evrópukeppni Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Sjá meira