Konungur á meðal skattakónga Bretlands Kjartan Kjartansson skrifar 26. júní 2026 08:59 Breska konungsfjölskyldan á góðri stundu. Karl og Vilhjálmur ákváðu að birta gögn um fjármál sín í þágu gagnsæis. Vísir/EPA Karl Bretakonungur segist hafa greitt jafnvirði rúmra tveggja milljarða króna í skatta í fyrra en þetta er í fyrsta skipti sem breskur einvaldur gefur slíkar upplýsingar upp. Breskir skattgreiðendur greiða um sautján milljarða undir konungsfjölskylduna.
Skattgreiðslur Karls konungs koma honum á lista yfir hundrað mestu skattakónga Bretlands, að sögn breska ríkisútvarpsins. Þær námu 12,9 milljónum punda fyrir 2024 til 2025. Vilhjálmur krónprins greiddi tæpar 8,8 milljónir punda, jafnvirði tæpra 1,5 milljarða íslenskra króna, á sama tímabili. Bæði hann og faðir hans tóku ákvörðun um að birta upplýsingar um fjárhag sinn sjálfviljugir. Saman hafa feðgarnir greitt tæpa 8,4 milljarða króna, um fimmtíu milljónir punda, í skatta frá því að Karl varð konungur árið 2022. Opinberar tekjur sínar hefur Karl úr sjóði hertogadæmis Lancaster. Í honum eru landareignir, fasteignir og ýmsar fjárfestingar. Tekjurnar námu um 25,2 milljónum punda, jafnvirði um 4,2 milljarða króna, fyrir 2025-2026. Þar eru ótaldar tekjur konungs af eigin fjárfestingum og eignum. BBC segir að gögnin sem konunglegu feðgarnir birtu sýni að stærsti opinberi útgjaldaliðurinn til konungsfjölskyldunnar komi til með hækka í rétt tæplega hundrað milljónir punda 2027 til 2028, jafnvirði tæpra sautján milljarða króna.
Kóngafólk Skattar, tollar og gjöld Bretland Karl III Bretakonungur Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Lög brotin við framleiðslu „túrbókjúklings“ í Danmörku Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Sjá meira