Stíf norðanátt með rigningu víða um land Lovísa Arnardóttir skrifar 27. júní 2026 07:13 Það verður rigning víða um land í dag. Vísir/Vilhelm Í nótt og í fyrramálið gengur sakvæmt spá í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land. Einna hvassast verður á norðvestanverðu landinu þar sem spáir norðaustan 10-15 m/s og hviðum yfir 25 m/s við fjöll.
Í dag er spáð suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndu, hvassast suðvestantil. Í veðurspá kemur fram að það verði suðaustlæg átt í dag og rigning um landið sunnan- og vestanvert, en úrkomulítið um tíma eftir hádegi á suðvesturhorninu. Þá á að vera að mestu þurrt fyrir norðan og austan þar sem verður einnig hlýjast eða upp í 17 stig. Seint í kvöld byrjar þó einnig að rigna þar samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun er svo spáð austan og norðaustan átta til fimmtán metrum á sekúndu og víða rigningu, hvassast norðvestantil. Samkvæmt spá á að draga úr vindi seinni partinn og úrkomuminna fyrir norðan. Hiti breytist lítið. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að upp úr hádegi í dag fari að draga úr vindi og annað kvöld stefnir í hæga breytilega átt. Þegar líður á daginn dregur einnig úr úrkomunni fyrir norðan. Á mánudag snýst í suðvestanátt með skúrum víða um land og jafnvel er útlit fyrir hellidembur seinni partinn á Norðausturlandi. Nánar um veður á vef Veðurstofunnar og um færð vega á vef Vegagerðar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Austan og norðaustan 8-15 m/s og víða rigning, hvassast norðvestantil. Dregur úr vindi seinni partinn og úrkomu fyrir norðan. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan. Á mánudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en allhvasst framan af með suðausturströndinni. Skúrir og hiti 9 til 16 stig, hlýjast austanlands. Á þriðjudag: Sunnan 8-15 m/s og rigning, en bjart með köflum á Austur- og Norðausturlandi. Hiti breytist lítið. Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 8-13 m/s og rigning eða skúrir, en að mestu þurrt norðaustanlands fram eftir degi. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustantil.
Veður Færð á vegum Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Sjá meira