Sérsveitarmenn um borð í Þór Áróra L Davíðsdóttir skrifar 28. júní 2026 20:28 Paul Watson segir skipi sínu beint til landsins til að stöðva hvalveiðar Hvals hf. og Kristjáns Loftssonar. Vísir/Vilhelm Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan þrjú í dag frá Reykjavíkurhöfn í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. vegna hótana Pauls Watsons sem beint er að hvalveiðum fyrirtækisins. Fimm sérsveitarmenn auk séraðgerðarmanna Landhelgisgæslunnar eru um borð í skipinu.
Eins og greint var frá í gær siglir Bandero, skip hvalaverndaraktívistans Paul Watsons, í íslenskri efnahagslögsögu. Watson segir skipinu beint til landsins til að stöðva hvalveiðar Hvals hf. og Kristjáns Loftssonar. 200 mílna efnahagslögsaga Íslands er alþjóðlegt hafsvæði en skipum ber að fara að fyrirmælum Landhelgisgæslunnar segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir skipið fyrst og fremst halda á svæðið til að vernda íslenska sjómenn og áhöfn hvalveiðiskipanna. Það stefni suðvestur eftir landinu og búist er við komu þess í nótt. Hann segir óljóst hvað aðgerðirnar taki langan tíma og hversu lengi eftirliti verður haldið úti. Hann segir atburðarrásina varðandi aðgerðirnar hafa verið mjög hraða en Landghelgisgæslan hefur verið í viðbragðsstöðu vegna hótana Watsons. Í síðasta mánuði boðaði stofnun Paul Watson til aðgerðar 86 í sumar til að binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Aðgerð 86 vísar til þess atburðar þegar aðgerðasinnar sökktu skipunum Hval 6 og Hval 7 í Reykjavíkurhöfn árið 1986. Georg segir áhöfn Banderos telja 27 manns. Einn áhafnarmeðlima sé annar tveggja aðgerðarsinna sem sökktu hvalveiðiskipum í Reykjavíkurhöfn árið 1986, hefur Georg eftir Watson, sem sé í París.
Hvalir Hvalveiðar Dýr Landhelgisgæslan Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Tengdar fréttir Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins. 28. júní 2026 13:11 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira
Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Áhöfn skipsins Bandero, skip hvalveiðiverndaraktívistans Paul Watson, hefur ekki orðið við beiðnum Landhelgisgæslunnar um að gefa upp staðsetningu skipsins sem sigldi inn í efnahagslögsögu Íslands í gær. Formaður Hvalavina hefur áhyggjur af komu skipsins til landsins. 28. júní 2026 13:11