„Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Jakob Bjarnar skrifar 29. júní 2026 11:22 Sveinn Waage hefur tekið saman býsna krassandi ummæli á Facebook-síðu Pawels, þar sem menn vaða í manninn en hugsa lítt um boltann. vísir/lýður valberg/Anton Brink Umræðan um Evrópumálin og kosningarnar sem til stendur að halda 29. ágúst næstkomandi um hvort halda beri viðræðum áfram eða ekki eru að nálgast einhvers konar hástig. Sveinn Waage, ráðgjafi og fyrirlesari, segist ýmsu vanur en athugasemdir sem nú falla hafa gengið fram af honum.
Sveinn hefur tekið saman nokkrar athugasemdir sem fallið hafa á Facebook-vegg Pawels Bartoszek, sem farið hefur framarlega í flokki þeirra sem berjast fyrir því að fólk segi já í komandi kosningum. Sveini gersamlega ofboðið Hann hefur til að mynda sett fram hugleiðingar um að vöruverð muni lækka umtalsvert gangi Ísland í Evrópusambandið. Það verður að segjast að Nei-liðarnir liggja ekki á skoðunum sínum og hella fúkyrðaflaumi yfir Pawel. Hann virðist hins vegar ekki láta þetta slá sig út af laginu en Sveini er ofboðið. „Glöggir landar mínir sjá að Nei-klanið er óhaggandi í sinni visku og gæsku og hér verður aldrei gerð tilraun til að snúa því við. En þið sem eruð að hugsa málið þá legg ég hér inn sýnishorn frá FB-síðu Pawel Bartoszek,“ segir Sveinn og spyr hvort fólki finnist heillandi að tilheyra þessum hópi fólks, hvort ummælin ein og sér séu hugsanlega ágæt ástæða til að afþakka boð í það partý? Þarna eru ýmis ókræsileg ummæli: „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt,“ er líkast til það skásta, Vísir er of siðprúður miðill til að vitna í verri ummæli. Og þar er engin tilraun gerð til að fara í boltann heldur er vaðið beint í manninn. Sveinn segir viðbrögð við þessu framtaki sínu mikil og samantektinni hafi verið dreift áfram. Pawel lætur þetta yfir sig ganga, ekki ég „Mitt mat er að þetta skemmi umræðuna. Ég hef tekið þátt í tveimur forsetakosningum og dílað við svona lið. En þetta er yfirgengilegt. Ég ákvað bara að taka þetta saman og sýna hvað er í gangi.“ Sveinn segir Nei-liðið hafa kvartað, sagt að þetta sé líka ljótt hinum megin. En það verði hins vegar fátt um svör þegar Sveinn rukkar þá um dæmi sem jafnist á við þetta. „Þetta er ekki boðlegt. Ég tók þetta saman og henti út, gerið svo vel. Pawel er þannig gerðar að hann lætur þetta yfir sig ganga en mér finnst ekki ástæða til þess,“ segir Sveinn sem staddur var í lest í Svíþjóð þegar Vísir náði tali af honum þar sem hann var að fylgja dóttur sinni á handboltamót. Hvimleitt veggjakrot „Þetta er er bara hvimleitt veggjakrot,“ segir Pawel í stuttu spjalli við Vísi. Pawel sjálfur vill ekki gera mikið úr þessum dónaskap.vísir/lýður valberg Hann vill ekki gera mikið úr þessu, segist til að mynda hafa slysast inn á athugasemdakerfi hjá Sigmundi Davíð Gunnalaugssyni formanni Miðflokksins og þar sé nú ýmislegt sagt sem ekki er til eftirbreytni. Og það komi þá frá mönnum sem staðsetja sig hinum megin girðingar. En þetta er ljóður á umræðunni sem slíkri, má ekki segja það? „Jahh, þetta dregur þróttinn úr fólki sem langar til að taka þátt í málefnalegri umræðu á hvorn veginn sem er. Ef fólk vill draga í efa eða deila á einhver rök mín varðandi verðlag og vexti og stöðu Íslands, sem er sjálfsagt að fólk geri og margir gera málefnalega, þarf fólk að gera það í kringum einhvern dónaskap sem myndi líkast til ekki líðast á leikskóla,“ segir Pawel og lætur sér hvergi bregða. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, þingmanni Samfylkingar, er hins vegar brugðið:
Samfélagsmiðlar Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent „Þetta situr náttúrulega í manni“ Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Sjá meira