Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður
1 2 3 4 5 6 … 7 ›
Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Stofnfundur Áfram Íslands fer fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll. Samtökin munu tala fyrir málstað nei-sinna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Innlent 6.7.2026 17:12
Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Landskjörstjórn og Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands hafa tilkynnt um opnun nýrra vefsvæða í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst um hvort taka eigi upp þráðinn á ný í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, þrettán árum síðar. Innlent 6.7.2026 17:07
„Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ spyr Kristján Loftsson, eigandi Hvals ehf., í viðtali við breska blaðið The Telegraph. Blaðið slær því upp að ríkisstjórn Íslands sé tilbúin til að banna hvalveiðar til að auðvelda inngöngu í ESB. Ísland sé eitt þriggja landa, auk Noregs og Japans, sem enn geri slíkt eftir að Alþjóðahvalveiðiráðið lagði bann við hvalveiðum árið 1986. Innlent 5.7.2026 10:54
Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Það var með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta segir forsætisráðherra sem telur fólk þurfa að fá að vera í friði til að melta sína ákvörðun. Þingið hafi tjáð sig lengi um málið. Innlent 4.7.2026 12:07
Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Almannatengill segir að ef upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu séu óskýrar eða ef á reiki sé um hvað kosið er geti það leitt til aðgerðarleysis að hálfu kjósenda. Innlent 3.7.2026 22:21
Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður telur einsýnt að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra veigri sér við að mæta sér í kappræðum um þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við ESB sem fram eiga að fara í lok ágústmánaðar. Innlent 3.7.2026 13:20
Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hafði boðið Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrrverandi utanríkisráðherra til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Nú liggur fyrir að Þorgerður kemur því ekki við að mæta. Innlent 3.7.2026 12:19
„Skráningum rignir inn“ Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn fullri aðild að Evrópusambandinu. Stofnfundur fer fram á mánudag. Halldór Benjamín Þorbergsson, einn stofnfélaga, segir að þó svo að baráttan fari fram um hásumar skynji hann mikinn áhuga. Skráningum rigni inn. Það sé ábyrgð þjóðar að kynna sér málið fyrir kosningar í ágúst. Innlent 1.7.2026 18:57
Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Áfram Ísland er ný hreyfing sem vill berjast gegn Evrópuaðild og hún hefur nú boðað til fundar í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll þann 6. júlí. Innlent 1.7.2026 15:17
Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Gunnlaugur Jónsson, sem er aðalsprautan í Paradigm, hefur boðið utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og fyrrverandi utanríkisráðherra, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, til kappræðna um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst næstkomandi. Miðað er við að kappræðurnar fari fram 14. ágúst. Innlent 30.6.2026 13:15
„Við verðum bara að horfast í augu við smæð okkar“ Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar, segist ætla að greiða atkvæði gegn framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið í ágúst. Ýmsum málum í sjávarútvegi þurfi að ganga frá innanlands áður en sótt er um aðild að ESB og ekki megi ofmeta samningsstöðu Íslands. Innlent 29.6.2026 18:27
„Hlægilegt þvaður gegn lýðræði!“ Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafnar því alfarið að þeir sem aðhyllast „Já“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu séu málefnalegir en þeir sem tali fyrir „Nei-i“ séu óalandi og óferjandi rugludallar. Innlent 29.6.2026 15:22
Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra varar Evrópusambandið við hugmyndum um að ný aðildarríki þurfi að bíða eftir fullum atkvæðis- og neitunarvaldsrétti eftir inngöngu í sambandið. Innlent 29.6.2026 12:54
„Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Umræðan um Evrópumálin og kosningarnar sem til stendur að halda 29. ágúst næstkomandi um hvort halda beri viðræðum áfram eða ekki eru að nálgast einhvers konar hástig. Sveinn Waage, ráðgjafi og fyrirlesari, segist ýmsu vanur en athugasemdir sem nú falla hafa gengið fram af honum. Innlent 29.6.2026 11:22
Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því. Innlent 27.6.2026 11:37
„Við erum eitt þeirra landa sem skilja fiskveiðarnar einna best“ Utanríkisráðherra Spánar segir Spánverja eiga Evrópusambandinu mikið að þakka og að uppbygging landsins frá því að það gekk í sambandið fyrir fjörtíu árum hafi að miklu leyti verið fjármögnuð með sjóðum ESB. Hann ræddi við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur á opnum fundi í Norræna húsinu í dag. Innlent 23.6.2026 20:02
Gjörbreytt staða ef Íslendingar ganga inn í ESB Utanríkisráðherra Noregs segir gjörbreytta mynd blasa við ákveði Íslendingar að ganga inn í Evrópusambandið. EES-samningurinn myndi þó halda en staða Norðmanna veikjast. Innlent 23.6.2026 14:16
„Úr penna þeirra manna streymir gamalt fullyrðingarusl“ Hannes Pétursson skáld skrifar grein á Vísi þar sem hann fer hörðum orðum um heift Nei-sinna í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp viðræður við Evrópusambandið. Innlent 23.6.2026 13:20
„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ „Við erum búin að vera í ESB núna í 30 ár,“ segir Baldur Pétursson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Baldur er eindreginn stuðningsmaður evrunnar. „EES-samningurinn er um það bil 75-80% aðgangur að ESB. Við höfum góða reynslu af 80% aðild að ESB, þannig að það er ekki nema 20% eftir,“ segir Baldur. Viðskipti innlent 21.6.2026 23:56
Þingið komið í sumarfrí Þingi hefur verið frestað og ganga alþingismenn nú út í sumarfrí. Lengsta umræðan á yfirstöðnu þingi fjallaði um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þing kemur saman á ný 8. september. Innlent 19.6.2026 17:19
Vilja segja „já til að sjá“ Stofnfundur samtaka fólks sem hyggst greiða atkvæði með framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið, SJÁ, verður haldinn í dag. Samtökin sameinist um að segja „já“ til að „sjá samning“. Innlent 18.6.2026 16:05
Nei-kvæðir ungliðar sameinast gegn ESB Fimm íslenskar ungliðahreyfingar þvert á hið pólitíska litróf hafa tekið sig saman og hyggjast stofna félagið Ung gegn ESB, sem hefur það að einsettu markmiði að sjá til þess að Íslendingar segi „nei“ í ágúst. Stofnfundur er haldinn á morgun, 17. júní, þar sem Birgir Ármansson og Sólveiga Anna Jónsdóttir verða meðal ræðumanna. Innlent 16.6.2026 16:07
Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir nýjar reglur sem framkvæmdastjórnin er með í smíðum eigi að tryggja að ný aðildarríki fari að reglum og haldi ekki sambandinu í heljargreipum. Reglurnar muni „bíta fast“ þau ríki sem fara ekki eftir þeim. Erlent 16.6.2026 06:54
„Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Forsætisráðherra telur ekki þörf á þingstubbi í ágúst til þess að ræða fjármálaáætlun og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu, líkt og Sjálfstæðisflokkurinn fór fram á. Þjóðin eigi nú orðið. Stefnt er að því að ljúka þingstörfum í seinni hluta vikunnar. Innlent 15.6.2026 12:25
Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Doktor í hagfræði telur að upptaka evru gæti leitt atvinnuleysi yfir Íslendinga og kostnaðurinn sé því mun meiri en ábati kynni að vera. Hann segir atvinnuleysi afar dýrt fyrir þjóðina og hafi þung áhrif á ungt fólk. Innlent 14.6.2026 17:11
Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Fleiri eru hlynntir en andvígir því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 prósent svarenda vera hlynntir viðræðum en 39,4 prósent andvígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 prósent veit ekki og 1,5 prósent vildu ekki svara. Innlent 13.6.2026 18:10
Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hérlendir Evrópusambandssinnar hafa ítrekað sagt að við Íslendingar ættum að taka frændur okkar Færeyinga til fyrirmyndar í Evrópumálunum. Sem er áhugavert þar sem Færeyjar eru ekki í Evrópusambandinu. Skoðun 12.6.2026 07:30
Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Efnahagsmál á Íslandi hafa aldrei uppfyllt öll þau skilyrði sem sett eru fyrir upptöku evru. Besti árangurinn var þó jafnaður í fyrra þegar Ísland uppfyllti þrjú af fimm skilyrðum en staðan hefur versnað síðan þá. Viðskipti innlent 12.6.2026 07:03
Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Þjónusta þjarka og falskra aðganga til að afvegaleiða umræðuna og auka upplýsingaóreiðu gengur kaupum og sölu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB. Innlent 10.6.2026 23:13
Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, opnaði sig um hatursorðræðu og áhyggjur sínar af lýðræðislegri umræðu. Svæsin ummæli um hana og aðra þingmenn vekja upp spurningar. Innlent 10.6.2026 22:55