Hvalur háði hálftíma dauðastríð Agnar Már Másson skrifar 1. júlí 2026 09:59 Langreyður dregin upp í hvalstöðina. Vilhelm Gunnarsson Samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar háði langreyður hálftíma langt dauðastríð þegar skyttur Hvals hf. veiddu hana hinn 22. júní. Dýraverndarsamtök krefjast þess að félagið verði svipt veiðileyfi.
Í tilkynningu frá Dýraverndarsambandi Íslands segir að frá því að veiðar á langreyðum hafi hafist að nýju í júní hafi í það minnsta tvö atvik komið upp sem gefi tilefni til þess að starfsemi Hvals hf. í Hvalfirði „verði stöðvuð og leyfi félagsins til veiða og vinnslu afturkallað.“ Þar vísa dýraverndarsamtökin annars vegar til yfirborðsmengunar sem er talin stafa frá Hvalstöðinni í Hvalfirði vegna mjölvinnslu en greint var frá því í kvöldfréttum Sýnar í gær. Forstjóri Hvals hf. hefur ekki svarað erindi heilbrigðiseftirlits Vesturlands frá því 11. maí um þessa mengun. „Hvalur hf. hefur reyndar haft í það minnsta tvö ár til að bæta úr þessu, eða frá að síðast voru veiddar langreyðar við Ísland, en ekkert brugðist við. Um er að ræða skýrt brot á starfsleyfi Hvals hf og sem varðað getur stöðvun starfseminnar eða afturköllun starfsleyfis.“ Hins vegar vísa samtökin til þess að langreyður sem veidd hafi verið þann 22. júní hafi reynst vera með fjögur skotsár samkvæmt skýrslu Matvælastofnunar, sem fer með eftirlit með veiðunum. Fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum. Þar segir að við fyrsta skot hafi hvalurinn farið á bakið, sokkið og virst dauður. Hann hafi hangið í línu en komið upp eftir sex mínútur. Um karldýr var að ræða. Langreyðurin háði hálftíma dauðastríð.Arne Feuerhahn Fyrsta skotið í dýrið var 17.06, næsta var um 17.26 og þriðja um 17.26. Fjórða og síðasta skotið var 17.37, samkvæmt skýrslunni. „Það tók 31 mínútu, frá því að fyrsti skutullinn hæfði dýrið, með 4 kg sprengihleðslu, og þar til það dó eftir að hafa verið skotið þremur sinnum til viðbótar. Hér er um að ræða skýrt brot á lögum um velferð dýra,“ segir í yfirlýsingu Dýraverndarsambandsins. Þá er bent á að sumarið 2023 hafi átt sér stað sambærilegt atvik þar sem það tók um 30 mínútur að aflífa dýr og voru veiðar Hvals hf. þá stöðvaðar tímabundið á meðan atvikið var rannsakað frekar og fyrirtækinu gefinn kostur á að bæta ráð sitt. Fjallað var um málið á sínum tíma í kvöldfrétum Stöðvar 2. Samtökin segja þó að ekkert bendi til þess að Hvalur hafi neitt lært af því atviki eða öðrum skráðum atvikum þar sem jafnvel taki enn lengri tíma en hér um ræðir að aflífa dýrin. „Dýraverndarsamband Íslands hvetur stjórnvöld eindregið til að stöðva þegar í stað þessar langreyðarveiðar þar sem Hvalur hf hefur ítrekað á undanförnum árum,“ skrifa samtökin. Í gær vakti það einnig hneykslan, meðal annarrs hjá ráðherra, þegar hvalvinnslumenn léku sér með hvalshræ í löndunarstöðinni í Hvalfirði. Þar otuðu þeir meðal annars hvalatyppi að tökumanni Vísis. Í gær var greint frá því að Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar, fylgdi enn skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson-samtakanna, eftir innan íslenskrar lögsögu. Samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals og er leiðangurinn kenndur við annan leiðangur árið 1986 þar sem tveimur skipum Hvals var sökkt.
Hvalveiðar Hvalir Dýr Mest lesið Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Innlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Innlent Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Brotist inn í garnverslun í Árbæ Innlent Bogi Ísak Nilsson er látinn Innlent Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Erlent „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við viðskiptadeild Bifrastar eftir átakavetur Engir gallar á kosningu til heimastjórnar Seyðisfjarðar Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Handtekinn vegna kannabisræktunar í Króksfjarðarnesi Bogi Ísak Nilsson er látinn Fyrsta skrefið í að kenna Íslendingum að nota fánann við fleiri tilefni Brotist inn í garnverslun í Árbæ Aðalmeðferð hefst í Reykholtsmálinu Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu fæðubótarefnis Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Viðreisn fjarlægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“ Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Á sjötta tug björgunarsveitarfólks kom að björguninni Ekki fleiri tilkynnt innbrot síðan 2022 „Þá er verið að hugsa um mögulegt viðbragð í neyðarástandi“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna veikinda Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym Spánverjum fjölgar þvert á þróunina Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Það er jóker í spilinu Skoða hvort gerviaðgangar og grunsamlegar síður séu erlend öfl í dulbúningi Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Brotist inn í Barnaloppuna Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Íbúi í Kænugarði um stríðið og áhyggjur lögreglu af erlendum áhrifum á ESB-kosningu Fortíð og framtíð Íslands í Evrópu á Sprengisandi Mundaði stólinn og lamdi gesti Sjá meira