Tvíliðaleikur Williams-systra gæti verið í uppnámi Andri Broddason skrifar 1. júlí 2026 18:48 Williams-systurnar hafa unnið fjórtán risamót og þrjú gull á Ólympíuleikunum saman. Getty/Tim Clayton Ekki er víst hvort Serena Williams nái að spila tvíliðaleik með systur sinni Venus Williams á Wimbledon-risamótinu í tennis. Hnéð hennar bólgnaði upp eftir endurkomu hennar í einliðaleik í gær.
Serena Williams er 44 ára en ákvað að taka þátt á Wimbledon-risamótinu í ár eftir að hafa lagt spaðann á hilluna fyrir fjórum árum. Hún tapaði fyrsta leik sínum í einliðaleik en þar mætti hún Ástralanum Maya Joint sem spilaði vel. Þrátt fyrir að hafa ekki unnið fyrsta leikinn í einliðaleik sýndi Williams mikið hugrekki og spilaði frábærlega á köflum. Aldurinn var greinilega farinn að segja til sín og var erfitt fyrir Williams að halda í við tvítuga mótherjann sinn. Auk þess að spila í einliðaleik ætlaði hún líka að spila í tvíliðaleik með systur sinni Venus Williams. Þær eru tvær af sigursælustu tennisleikmönnum allra tíma og eru eitt sterkasta tvíliðaleikspar fyrr og síðar. Saman unnu þær fjórtán risamót saman og þrjú gull á Ólympíuleikunum. Þær eiga líka eitt gull í einliðaleik á Ólympíuleikunum hvor. Serena fann fyrir meiðslum í hnénu strax í fyrsta setti leiksins í gær en harkaði af sér og kláraði leikinn. Hún tapaði fyrsta settinu en náði að vinna annað í upphækkun. Í þriðja settinu var hún áberandi þreytt og endaði Maya Joint á að vinna það örugglega. Eftir leikinn byrjaði hnéð á Serenu strax að bólgna upp og fékk hún leyfi frá læknum Wimbledon-risamótsins til að sleppa við að taka viðtöl eftir leikinn. Læknar buðu henni einnig hækjur til að ganga á en hún afþakkaði boðið. Serena er ekki búin að greina frá því hvort hún verði klár fyrir tvíliðaleikinn sem á að vera spilaður á föstudaginn en það verður sögulegt að systurnar tvær stígi aftur á tennisvöllinn. Það er eitthvað sem enginn tennisáhugamaður á að láta fram hjá sér fara.
Tennis Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Kane bjargaði enskum Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Belgía - Senegal | Slagur í Seattle Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Fleiri fréttir „Frábært að fá Martin aftur“ Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Skilur eftir minningar alveg eins og leikurinn Þórir til nýliða í ítölsku úrvalsdeildinni Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Belgía - Senegal | Slagur í Seattle Tvíliðaleikur Williams-systra gæti verið í uppnámi Kane bjargaði enskum Fleiri augu á mér í þessari deild Slæmur skellur gegn Spáni en mun betri seinni hálfleikur „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ „Ég er farinn“ Ungstirnið í Breiðablik keypt til Danmerkur Rómans Stefáns og Deschamps Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Rooney vill að Mainoo byrji hjá Englandi frekar en Anderson Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Brasilísk stjarna missir af leiknum gegn Noregi og kannski rest Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa „Þú verður að spyrja hann að því“ Seldu einn sinn besta leikmann til Bandaríkjanna Maður dagsins á HM: Hetja Mexíkó á HM sem fæddist í Kólumbíu Aðstoðarþjálfari Stjörnunnar segir upp Sjokkið breyttist í ævintýri Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Sjá meira