Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Áróra L Davíðsdóttir skrifar 2. júlí 2026 14:44 Gary Glitter Getty Gary Glitter, fyrrverandi poppstjarna og dæmdur barnaníðingur, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Meintu brotin ná aftur til ársins 1978. Glitter var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2015 fyrir að brjóta á stúlkum, átta til þrettán ára.
BBC hefur eftir lögreglunni í Lundúnum að ákærurnar varði kynferðisbrot gegn stúlku þegar hún hafi verið þrettán og fjórtán ára. Brotin hafi átt sér stað á árunum 1978 til 1981 í Kensington. Nú sé hann í haldi lögreglu. Rannsókn málsins hófst þann 9. janúar í fyrra þegar lögreglunni í Lundúnum var tilkynnt um brotin. Hann hafi fyrst verið yfirheyrður þann 22. júlí í tengslum við rannsókn málsins og hann fari fyrir dóm þann 5. ágúst næstkomandi. Gary Glitter, sem heitir réttu nafni Paul Gadd, var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2015 fyrir að brjóta kynferðislega gegn þremur stúlkum, átta til þrettán ára, á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Hann hafði afplánað helming dómsins þegar hann var látinn laus til reynslu árið 2023. Hins vegar var hann kallaður aftur til afplánunar rétt rúmum mánuði seinna en fangelsisyfirvöld sögðu hann hafa rofið skilmála lausnarinnar. Glitter naut mikillar hylli sem poppstjarna á áttunda áratug síðustu aldar. Stjarna hans féll hratt þegar hann játaði sig sekan um vörslu á þúsundum barnaníðsmynda og var dæmdur í fangelsi árið 1999. Honum var vísað frá Kambódíu í skugga ásakana um kynferðisofbeldi árið 2022 og fjórum árum síðar var hann dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að misnota tvær ungar stúlkur í Víetnam.
Kynferðisofbeldi Bretland Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Sjá meira