Lífið

Pétur Jóhann á von á öðru barna­barni

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni.
Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni.

Sylvía Sól Geirdal Pétursdóttir, áhrifavaldur og starfsmaður Bláa lónsins, og Ólafur Valur Sigurðsson, vefsmiður hjá CCP, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Sylvía er elsta dóttir skemmtikraftsins Péturs Jóhanns Sigfússonar sem er því að verða afi.

Sylvía Sól, sem hefur gert það gott á íslenska TikTok með sérlega kósý myndböndum, fagnaði 27 ára afmæli sínu í gær. Samdægurs tilkynnti hún með Ólafi, kærasta sínum, að þau ættu von á barni á Instagram.

„Langbesti kaflinn hingað til að byrja, mamma og pabbi,“ sagði í færslunni en parið hefur verið saman í þrjú ár.

Þetta er þó ekki fyrsta barnabarn Péturs því hann varð fyrst afi um páskana árið 2023 þegar sonur hans og Sigrúnar Halldórsdóttur eignaðist dóttur.


Tengdar fréttir

Pétur Jóhann nú fyndnasti afi landsins

Fjölmiðlamaðurinn og grínistinn Pétur Jóhann Sigfússon varð afi á dögunum þegar lítið stúlkubarn kom í heiminn miðvikudag fyrir páska.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.